A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf í Strandabyggð - umsóknarfrestur rennur út á morgun

| 11. apríl 2012
Vinnuskólinn sumarið 2011. Mynd IV
Vinnuskólinn sumarið 2011. Mynd IV
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir sumarstarfsfólki á eftirtalda starfsstaði sumarið 2012:
- Áhaldahús Strandabyggðar
- Vinnuskóli Strandabyggðar
- Íþróttamiðstöð Strandabyggðar

Leitað er að dugmiklu fólki með ríka þjónustulund sem hefur áhuga á að vinna að áframhaldandi þróun og uppbyggingu í Strandabyggð. Umsóknum skal skila á Skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, og er umsóknarfrestur til og með 12. apríl 2012. Einnig er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má sjá neðst til hægri hér á síðunni.


ÁHALDAHÚS STRANDABYGGÐAR
Áhaldahús Strandabyggðar auglýsir 3 laus störf sumarið 2012. Um fjölbreytt og skemmtileg verkefni er að ræða sem fara að mestu fram utandyra:
- Hreinsunarstarf og tiltekt
- Málningarvinna
- Aðstoð við Vinnuskóla Strandabyggðar
- Aðstoð við Hamingjudaga
- Önnur verkefni

Vigtarréttindi koma sér vel. Gerð er krafa um dugnað, sjálfstæð vinnubrögð, góð samskipti og ríka þjónustulund.

VINNUSKÓLI STRANDABYGGÐAR
Vinnuskóli Strandabyggðar auglýsir eftir yfirleiðbeinanda sumarið 2012. Tvö fimm vikna tímabil verða í boði í Vinnuskóla Strandabyggðar í sumar og hefur yfirleiðbeinandi umsjón með þeim. Fyrra tímabil verður 4. júní - 6. júlí og seinna tímabil 9. júlí - 10. ágúst. Vinnuskóli Strandabyggðar heyrir undir verkstjóra Áhaldahúss. Í starfinu felast eftirfarandi verkefni:
- Yfirumsjón með verkefnum og fræðslu
- Verkstjórn yfir aðstoðarfólki
- Verkstjórn yfir ungmennum í 7. - 10. bekk
- Yfirumsjón og skipulagning verkefna
- Ábyrgð á verkfærum og innkaupum á vegum Vinnuskólans
- Samskipti og samstarf við tómstundafulltrúa Strandabyggðar og íbúa á svæðinu
- Annað sem til fellur

Gerð er krafa um góð samskipti og góð tengsl við fólk á öllum aldri, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og þjónustulund.

ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ STRANDABYGGÐAR
Íþróttamiðstöð Strandabyggðar auglýsir eftir sumarstarfsfólki til að sinna eftirtöldum verkefnum:
- Afgreiðslu
- Baðvörslu
- Sundlaugarvörslu
- Þrifum
- Önnur verkefni

Í nýrri reglugerð nr. 818/2010 um hollustuhætti á sundstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu, sundkennarar og sundþjálfarar skulu hafa náð 18 ára aldri og árlega standast hæfnispróf skv. III viðauka reglugerðarinnar.

Gefa skal út prófskírteini ef viðkomandi stenst hæfnispróf. Einnig er gerð krafa um gott viðmót, ríka þjónustulund og kunnáttu í erlendum tungumálum.

Umsækjendur á öllum aldri, líka yngri en 18 ára, geta sinnt öðrum störfum í Íþróttamiðstöðinni en sundlaugarvörslu og eru því allir hvattir til að sækja um.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón