A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfisnefnd - 5. mars 2008

Mættir voru Jón Halldórsson, Eysteinn Gunnarsson, Jón Gísli Jónsson, Ásta Þórisdóttir og að auki sat fundinn Ragnhildur Helga Jónsdóttir frá Landsskrifstofu Staðardagskrár 21.
 
Dagskrá fundarins
 
1. Staðardagskrá 21
2. Önnur mál

1. Staðardagskrá 21.

Fjölskyldumál, lífstíll og neysla:

  • Útivist. Rætt var um hvernig væri hægt að auka áhuga fólks á útivist, til dæmis með göngustígagerð, m.a. um Óshring og fyrir ofan Kálfanes og út á Grundir.
  • Reiðvegir. Samþykkt var fyrir löngu síðan af Vegagerðinni að lagður verði reiðvegur fyrir ofan Kálfanes. Umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að hún athugi hvað því verki líður og reki á eftir framkvæmdum við reiðvegi í sveitarfélaginu. Hvatt er til þess að boðið verði upp á námskeið um græn innkaup fyrir stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki, á degi umhverfisins 25. apríl nk. Námskeiðið býðst sveitarfélaginu að kostnaðarlausu frá Landsskrifstofu Staðardagskrár 21.
  • Leikvellir barna. Full þörf er á að lagfæra leikvelli, t.d. við Höfðatún. Fyrirhugað er að endurbæta leikvöll við skóla í sumar.
  • Það vantar betri aðgang að merki Stefáns frá Hvítadal og athuga hvort hægt væri að merkja gönguleið frá söluskála KSH þangað niðureftir.
Stofnanir sveitarfélagsins:
  • Félagsheimilið hefur fengið upplyftingu á síðustu mánuðum, en vantar betri nýtingu. Full ástæða er fyrir sveitarfélagið að halda áfram að eiga og reka félagsheimili og reyna að koma meiri starfsemi í húsið og skipuleggja nýtingu þess.
  • Full ástæða er til að gera áætlun um viðhald á húsnæði í eigu sveitarfélagsins, til að spara peninga sem fara annars í handahófskennt viðhald.
  • Rætt var um sameiginleg innkaup sveitarfélagsins og að hægt væri að hagræða með auknu samráði.
  • Aukin ábyrgð stjórnenda. Með rammafjárlögum færist aukin ábyrgð á millistjórnendur sem er mjög gott að mati Umhverfisnefndar. Gríðarlega mikilvægt er að gera góða áætlun um framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins til að minnsta kosti 3ja ára til að auka skilvirkni og sparnað í verkefnum.
Fjölskyldumál:
  • Rætt var um að gera könnun meðal íbúa hvaða afþreyingu fólki finnst vanta í sveitarfélagið.
  • Það vantar varanlegt húsnæði fyrir félagsstarf eldri borgara.

2. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin fyrir.

Fundi slitið kl. 22:36

Fundarritari: Jón Gísli Jónsson

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón