A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Varaoddviti Strandabyggðar fær Landstólpann

| 23. ágúst 2011
Myn af vef Byggðastofnunar. Á henni eru auk Jóns, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Anna Kristín Gunnarsdóttir fráfarandi formaður stjórnar.
Myn af vef Byggðastofnunar. Á henni eru auk Jóns, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Anna Kristín Gunnarsdóttir fráfarandi formaður stjórnar.
« 1 af 2 »
Á ársfundi Byggðastofnunar á Sauðárkróki í gær var í fyrsta sinn afhent samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar - Landstólpinn, en ætlunin er að sú viðurkenning verði afhent árlega í framtíðinni. Óskað var eftir tilnefningum um einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag, síðastliðið vor. Sérstök dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar sem bárust og ákvað að veita Jóni Jónssyni á Kirkjubóli, menningarfulltrúa Vestfjarða, viðurkenninguna að þessu sinni.  


Í rökstuðningi kom fram að um nokkurs konar bjartsýnisverðlaun væri að ræða og að Jón hafi með störfum sínum vakið jákvæða athygli á sinni heimabyggð og verið ötull talsmaður ferðaþjónustu og menningar á Vestfjörðum. Þá sé hann virkur í félagsstarfi og menningarlífi og að auki frumkvöðull í uppbyggingu ferðaþjónustu, menningarstofnana og fræðastarfs á svæðinu.


Jón Jónsson hefur frá hausti 2007 starfað fyrir Menningarráð Vestfjarða sem menningarfulltrúi. Hann situr jafnframt í sveitarstjórn Strandabyggðar frá 2010 og í stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga. Jón stofnaði héraðsfréttavefinn strandir.is árið 2004 og hefur verið ritstjóri hans síðan þá.


Í reglum um Landstólpan kemur fram að viðurkenningin skal veitt einhverjum þeim sem hefur vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðru móti. Viðkomandi gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. Nafn viðurkenningarinnar kemur úr kvæði eftir Jónas Hallgrímsson.

Sveitarfélagið Strandabyggð óskar Jóni Jónssyni innilega til hamingju með Landstólpann.

Frétt af vefnum www.strandir.is.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón