A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Val á íþróttamanni- eða konu Strandabyggðar

| 17. desember 2015

Samkvæmt reglugerð um útnefningu á íþróttamanni eða -konu ársins hefur Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd umsjón með valinu á ári hverju. Senda skal tilnefningar og stuttan rökstuðning á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is eigi síðar en sunnudaginn 10. janúar. Allir mega senda inn tilnefningu og frjálst er að nefna fleiri en einn aðila en viðkomandi þurfa að hafa haft lögheimili í Strandabyggð á síðastliðnu ári. Upplýst verður um valið á íþróttahátíð Grunnskólans á Hólmavík mánudaginn 18. janúar 2015.

Útnefningin er fyrst og fremst hugsuð sem viðurkenning fyrir íþróttaafrek, framlag til íþróttastarfs og hvatning til frekari afreka.Viðurkenningin var fyrst veitt með þessu sniði fyrir árið 2012, þá hlaut Ingibjörg Emilsdóttir nafnbótina íþróttamaður ársins og Jamison Ólafur Johnson hlaut sérstök hvatningarverðlaun. Sigríður Drífa Þórólfsdóttir var hins vegar valin íþróttakona ársins 2013 en Trausti Rafn Björnsson hlaut þá sérstök hvatningarverðlaun. Íþróttamaður ársins 2014 var Jamison Ólafur Johnsson og sérstök hvatningarverðlaun hlaut Ingibjörg Benediktsdóttir. Handhafi viðurkenningarinnar hlítur farandbikar sem er í vörslu viðkomandi í eitt ár.

Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar hvetur alla til að nýta þetta tækifæri til að minnast þeirra afreka sem íþróttafólk okkar hefur unnið á liðnu ári.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón