A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umsóknarfrestur í Vinnuskóla rennur út í dag

| 18. maí 2012
Líf og fjör - ljósm. Jón Jónsson
Líf og fjör - ljósm. Jón Jónsson
Í dag rennur út frestur til að skila inn umsóknum um vinnu í Vinnuskóla Strandabyggðar sumarið 2012. Umsóknum á að skila á skrifstofu Strandabyggðar sem er opin til kl. 14:00. Umsóknareyðublað og reglur Vinnuskólans má nálgast með því að smella hér. Vinnuskólinn verður nú starfræktur á tveimur fimm vikna tímabilum undir stjórn Ragnheiðar Gunnarsdóttur. Fyrra tímabilið stendur yfir frá 4. júní til 6. júlí, seinna tímabilið frá 9. júlí til 10. ágúst.

Umsækjendur þurfa því að velja hvort vinnutímabilið hugnast þeim betur. Unnið verður fyrir hádegi frá kl. 8:30 til kl. 12:00, en vinnuskólinn er ætlaður börnum og unglingum fæddum árin 1996, 97, 98 og 99.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón