A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starf í boði: Leikskólastjóri á Hólmavík

| 31. ágúst 2010

Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir leikskólastjóra. Í skólanum eru um 30 börn í tveimur deildum og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Einkunnarorð skólans eru: Gleði – Virðing – Vinátta.

 

Meginhluverk leikskólastjóra er að:

# Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi 
# Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fjármálum og rekstri skólans
# Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans í samstarfi við sveitarstjórn

 

Menntunar- og færnikröfur:
# Leikskólakennaramenntun áskilin
# Menntun, hæfni og reynsla í stjórnun æskileg
# Færni í mannlegum samskiptum

# Áhugi á börnum og samskiptum við þau

# Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi

 

Hólmavík er í 234 km fjarlægð frá Reykjavík og tilheyrir sveitarfélaginu Strandabyggð sem rúmlega 500 manns búa í. Þar er góð þjónusta, öflugur grunn- og tónlistaskóli, fjölbreytt menningarstarf og góð íþrótta- og útivistaraðstaða í einstaklega fallegu umhverfi. Nánar á  www.strandabyggd.is og www.123.is/laekjarbrekka.

 

Umsóknarfrestur er til 15. september næstkomandi. Umsóknir, ásamt ferilskrá og meðmælendum, berist á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, netfang: holmavik@holmavik.is, sem einnig gefur nánari upplýsingar í s. 451-3510.

 

Staðan er laus frá og með 1. október 2010.

 

Hólmavík,  31. ágúst 2010
Sveitarstjóri Strandabyggðar

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón