A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starf í IÐJU - brautryðjendastarf

| 10. maí 2013
Í haust mun Félagsþjónusta Stranda- og Reykhólahrepps opna Iðju fyrir fólk sem hefur lítið fyrir stafni dags-daglega vegna atvinnuleysis, sjúkdóma, fötlunar, þá sem eru félagslega einangraðir og þá sem eru í endurhæfingu og aðra sem hafa áhuga á þátttöku. Iðjan er staður þar sem opið er frá 9.00 á morgnana til klukkan 14:00 á daginn alla virka daga og er opið hús fyrir alla sem vilja.

Í Iðju fer fram ýmis konar starfssemi eins og mósaíkgerð, prjónaskapur, tálgun, tafl osfrv. Heitt er á könnunni allan daginn og fólk velkomið að koma að spjalla og kíkja við. Hádegisverður verður í boði fyrir litla upphæð en þeir sem þar dvelja taka þátt í undirbúningi og framleiðslu matarins.
Hver og einn aðili sem mætir í iðjuna þarf að leggja sitt af mörkum. Hugmyndin er líka sú að vera með sjálfsstyrkingarnámskeið í framtíðinni og jafnvel standa fyrir ræðusköpum og eflingu fólks í að koma opinberlega fram og tala. Reynslan af úrræðinu og hugmyndir frá öðrum svipuðum úrræðum verður að kenna okkur að þróa úrræði betur. Um tilraunaverkefni er að ræða til eins árs.

Félagsþjónustan óskar eftir starfsmanni í 60 % starf nk. vetur til að sinna þessari starfssemi. Viðkomandi verður að vera lipur í samskiptum, vera laus við fordóma og umburðarlyndur. Æskilegt er að viðkomandi laginn í höndunum og hafi gaman
af því að þróa og finna nýjar hugmyndir.
Vinsamlega sendið umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi á felagsmalastjori@strandabyggd.is fyrir 24.maí nk. Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri, Hildur Jakobína Gísladóttir í síma 842-2511 eða 451-3510.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón