A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Skólahald fellur niður á morgun 8. desember vegna vonskuveðurs í spákortum

| 07. desember 2015

Allt skólahald fellur niður á morgun, þriðjudaginn 8. desember, bæði í Grunn- og tónskóla Hólmavíkur sem og Leikskólanum Lækjarbrekku á Hólmavík. Þessi ákvörðun hefur verið tekin í ljósi mjög vondrar veðurspár. Skólastjórnendur hafa sent tilkynningar til foreldra skólabarna vegna þessa.

Íbúar í Strandabyggð eru kvattir til að huga að húsum sínum og nánasta umhverfi og fylgjast vel með veðurspám og tilkynningum frá Almannavörnum og í fjölmiðlum.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón