A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Skemmtilegt og gefandi starf laust til umsóknar

| 16. júlí 2015

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf og er vinnutíminn 8:00-16:00. Einnig auglýsum við eftir starfsmanni í 50% starf og er vinnutíminn 12:00-16:00.

Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni, frumkvæði í starfi og  jákvæðni mikilvægur kostur.

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3. Umsóknafrestur er til 22. júlí 2015. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón