A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna

| 24. ágúst 2018

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna


Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15–17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist, námsgörðum eða á almennum markaði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Þegar fleiri en einn nemandi leigja saman íbúð getur húsnæðisstuðningur náð til þeirrar leigu enda sé gerður leigusamningur við hvern og einn. Um leigu á almennum markaði er gerð krafa um að hvorki umræddur nemandi né aðrir sem leigja húsnæðið séu náskyldir eða mikið tengdir leigusala. Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 60% af leigufjárhæð. Fjárhæð styrks skal þó aldrei nema hærri upphæð en 22.000 kr. á mánuði. Lágmarksgreiðsla foreldra eða forsjáraðila skal vera 10.000 kr. á mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns. Ákvæði 3.-5. gr. reglna þessara gilda ekki um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15-17 ára barna.

 

26. gr.

 Málsmeðferð

a)    Umsóknir skulu berast á skrifstofu Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps á þar til gerðum eyðublöðum.

b)    Skila þarf inn vottorði frá viðkomandi menntastofnun sem staðfestir nám umsækjanda.

c)    Afgreiða skal umsókn eins fljótt og unnt er eftir að hún berst og skal niðurstaða kynnt umsækjanda.

d)    Sé umsókn hafnað skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan í ákvæði þessara reglna. Jafnframt skal umsækjanda kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar velferðarmála.

e)    Segi umsækjandi upp leigu eða breyting verði á leigugreiðslu ber að tilkynna það til Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón