A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Minnum á fund um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál

| 09. nóvember 2011
Herra Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Herra Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Minnum á opinn fund um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál sem verður haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík fimmtudaginn 10. nóvember n.k. Herra Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun flytja framsögu um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, stöðu þeirra í dag og fyrirhugaðar breytingar.
 
Á fundinum verða einnig stuttar framsögur þar sem farið verður yfir stöðuna í þessum stóru málaflokkum á Ströndum og nýsköpun í atvinnugreinunum hér.

Dagskráin verður sem hér segir:
 
-          Sjávarútvegs-og landbúnaðarmál - herra Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
-          Jón Jónsson - varaoddviti í Strandabyggð
-          Landbúnaðarmál - Matthías Lýðsson bóndi í Húsavík
-          Sjávarútvegsmál - Óskar Torfason framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Drangs ehf., Drangsnesi
-          Sjávarútvegsmál - Már Ólafsson í stjórn Landssambands smábátaeigenda og í stjórn Strandir, félags smábátaeigenda í Strandasýslu
-          Pallborðsumræður

Fundarstjóri er Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri í Strandabyggð. 

Íbúar í öllum sveitarfélögum á Ströndum og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn sem hefst kl. 17:00

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón