A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku

| 07. maí 2013
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennurum eða leiðbeinendum til starfa. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf hið fyrsta.

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugum fólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund auk þess sem skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur. Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411 en einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið leikskolastjori@holmavik.is.

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 13. maí 2013. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón