A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kosningar, yfirstrikanir og nánari skýringar

Salbjörg Engilbertsdóttir | 20. maí 2022


Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn Strandabyggðar var lítið um yfirstrikanir í kosningum til sveitarstjórnar laugardaginn 14. maí og höfðu ekki áhrif til breytinga. Eitthvað var um að frambjóðendur væru færðir til um sæti en hafði heldur ekki áhrif á sæti þeirra.

Á A-lista var það Matthías Lýðsson oddviti A-lista sem fékk flestar útstrikanir eða 5. Hlíf Hrólfsdóttir fékk 2 útstrikanir og Guðfinna Hávarðardóttir og Ragnheiður Ingimundardóttir fengu 1 útstrikun hvor.

Sex frambjóðendur T-lista fengu útstrikanir. Þorgeir Pálsson, oddviti flokksins, fékk 1 útstrikun, Jón Sigmundsson fékk 6 útstrikanir,  Sigríður Jónsdóttir 2 útstrikanir.

Kjörsókn var mjög góð eða 83,8% en 334 voru á kjörskrá, 280 manns greiddu atkvæði, gildir atkvæðaseðlar voru 266 en auðir seðlar 9 og ógildir 5.

Þessir aðilar skipa því sveitarstjórn Strandabyggðar 2022-2026 og taka við stjórnartaumnum þann 29. maí 2022 og óskum við þeim til hamingju með kjörið.

1.Þorgeir Pálsson T
2.Jón Sigmundsson T
3.Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir T
4. Matthías Lýðsson A
5. Hlíf Hrólfsdóttir A
 
Varamenn:
6. Guðfinna Magney Sævarsdóttir T
7. Óskar Hafsteinn Halldórsson T
8. Grettir Örn Ásmundsson T
9. Guðfinna Lára Hávarðardóttir A
10. Ragnheiður Ingimundardóttir A




Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón