A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Jólatónleikar Grunn- og tónskólans hefjast í kvöld

| 11. desember 2012
Jólatónleikar Grunn- og tónskólans á Hólmavík verða haldnir í þessari viku. Fyrri tónleikarnir verða haldnir í kvöld, þriðjudag 11. desember og hefjast stundvíslega klukkan 19:30. Þar verða flytjendur nemendur Jóns Ingimundarsonar tónlistarkennara.

Seinni tónleikarnir verða á fimmtudag 13. desember og hefjast einnig stundvíslega klukkan 19:30. Þar flytja nemendur Andra Ívarssonar tónlistarkennara sína dagskrá. Allir íbúar Strandabyggðar og nágrannasveitarfélaga eru boðnir hjartanlega velkomnir á tónleikana.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón