A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Heiðursborgarar Strandabyggðar

| 02. júlí 2011
Sverrir Guðbrandsson og Ólafía Jónsdóttir heiðursborgarar Strandabyggðar taka á móti viðurkenningum. Myndir JG.
Sverrir Guðbrandsson og Ólafía Jónsdóttir heiðursborgarar Strandabyggðar taka á móti viðurkenningum. Myndir JG.
« 1 af 4 »
Á hátíðarfundi sveitarstjórnar Strandabyggðar sem haldinn var á Klifstúni föstudaginn 1. júlí var samþykkt að velja Ólafíu Jónsdóttur og Sverri Guðbrandsson sem heiðursborgara Strandabyggðar. Veittu þau viðurkenningu þess efnis móttöku við hátíðlega setningarathöfn Hamingjudaga 2011. Sveitarfélagið Strandabyggð sendir þeim hlýjar þakkir, framlag þeirra til samfélagins er til fyrirmyndar.  

Í tillögu sveitarstjórnar sem lögð var fyrir fundinn kom eftirfarandi fram: 
 

Gerð er tillaga um að Ólafía Jónsdóttir frá Skriðinsenni verði heiðursborgari Strandabyggðar. Ólafía Jónsdóttir fæddist árið 1928 og ólst upp hjá foreldrum sínum á Skriðinsenni í Bitrufirði á Ströndum. Hún tók ljósmæðrapróf árið 1960 og starfaði fyrsta árið sem ljósmóðir á Landspítalanum, en síðan sem ljósmóðir á Ströndum. Ólafía flutti til Hólmavíkur árið 1962 og tók á móti fjölda barna á sjúkrahúsinu á Hólmavík, en þar starfaði hún einnig lengi sem forstöðukona á hjúkrunardeildinni. Ólafía hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í tónlistarlífi á Ströndum og var um árabil kirkjuorganisti á Hólmavík og víðar í Strandasýslu. Sinnti hún störfum sínum af alúð og natni.

 

Gerð er tillaga um að Sverrir Guðbrandsson frá Heydalsá verði heiðursborgari Strandabyggðar. Sverrir Guðbrandsson fæddist árið 1921 á Heydalsá í Steingrímsfirði á Ströndum og ólst þar upp. Hann var síðan bóndi á Klúku í Miðdal í 25 ár, en flutti þá með fjölskyldu sinni til Hólmavíkur. Þar starfaði Sverrir lengi sem pakkhúsmaður hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík. Sverrir og Sigurrós Þórðardóttir kona hans áttu sjö börn og fjölda afkomenda. Á fullorðinsárum ritaði Sverrir æfiminningar sínar og komu þær út í bókinni Ekkert að frétta... sem Vestfirska forlagið gaf út árið 2004. Bókin er sannkallaður gullmoli, jafnt fyrir afkomendur Sverris og aðra Strandamenn. Hún einkennist af persónulegri frásögn og hlýju. Gamansemi fær að njóta sín um leið og brugðið er upp ómetanlegum svipmyndum af mannlífi á Ströndum á 20. öldinni.


Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón