A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Hátíðardagskrá ársins 2015

| 22. janúar 2015
Nýtt ár er gengið í garð með öllum sínu fögru fyrirheitum. Margir eru eflaust farnir að skipuleggja árið, láta sig dreyma um ferðalög, hlakka til skemmtana og skipuleggja verkefni ársins 2015 en úr nógu er að velja.

Til að einfalda ykkur skipulagninguna tilkynnist hér með að Hörmungardagar 2015 verða haldnir í annað sinn 20.-22. febrúar og Hamingjudagar verða 10 ára 26.-28. júní næstkomandi.

Turtle filmfest verður síðan haldin 10.-16. ágúst en um er að ræða kvikmyndahátíð sem haldin er að frumkvæði þýskra listamanna sem hafa í huga að heiðra kvikmyndalistamanninn Werner Herzog með hátíðinni og stefna á að starfa í nánu samstarfi við heimafólk. Hátíðin verður kynnt nánar síðar en upplýsingar má einnig finna á heimasíðu hátíðarinnar.

Áhugasömum um að taka þátt í hátíðunum með einum eða öðrum hætti  er bent á að hafa samband við Esther Ösp í tölvupósti (tomstundafulltrui@strandabyggd.is)


Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón