A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Háskólalestin á Hólmavík

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. maí 2014

Háskólalestin á leið til Hólmavík

Háskólalest Háskóla Íslands er nú lög af stað í sína árlegu ferð og er þetta fjórða vorið sem lestin brunar um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í ferðum lestarinnar er lögð er áhersla á lifandi og litríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna og eru allir viðburðir ókeypis. Um næstu helgi er stefnan tekin á Hólmavík en þar nemur lestin staðar í tvo daga.

Vísindaveisla í Félagsheimilinu 24. maí kl. 12 - 16
Sprengjugengi, Stjörnutjald og magnaðar tilraunir

Föstudaginn 23.maí sækja nemendur í 6. – 9. Bekkjar grunnskóla Hólmavíkur og Drangsness námskeið í Háskóla unga fólksins í efnafræði, eðlisfræði, japönsku, stjörnufræði og vísindaheimspeki.

 

Laugardaginn 24. maí verður síðan slegið upp veglegri vísindaveislu í Félagsheimilinu kl. 12 til 16 og þangað er öllum heimamönnum boðið. Þar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. Þjóðfræðistofa og Galdrasýningin taka líka þátt og heilmargt annað verður í boði fyrir gesti og gangandi.

 

Sprengjugengið landsfræga er með í för og sýnir kl. 12.30 og 14.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti. Tjaldið verður staðsett í Íþróttahúsinu.


Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis  og allir hjartanlega velkomnir.

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á vef hennar og á Facebook

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Bachmann lestarstjóri, gudrunba@hi.is, 864 0124.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón