A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Ebba Guðný heilsukokkur heldur fyrirlestur í Félagsheimilinu á Hólmavík

| 30. október 2015
Ebba Guðný heilsukokkur heldur fyrirlestur í Félagsheimilinu á Hólmavík, mánudaginn 2. nóvember kl 17:00. Verð 1000 kr. Allir hjartanlega velkomnir! Sjá auglýsingu hér.

Ebba Guðný Guðmundsdóttir, bókaútgefandi, heilsukokkur og umsjónarmaður þáttanna; Eldað með Ebbu á RUV heldur erindi um heilsu og hollustu fyrir alla. Þar fer hún yfir einföld atriði sem allir ættu að geta tileinkað sér til að bæta heilsu sína og sinna nánustu án mikillar fyrirhafnar. Ebba er þekkt fyrir að tala mannamál og hafa húmor fyrir sjálfri sér. Hún hefur sjálf barist við fæðuóþol og magavandræði frá unga aldri og hefur þess vegna garfað í heilsu og næringu í rúm 20 ár og er orðin hokin af reynslu. Hún lofar fræðslu sem nýtist flestum, ef ekki öllum.

Athugið: Enginn posi til staðar, vinsamlegast greiðið með reiðufé.

Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík

Foreldrafélag Leikskólans Lækjarbrekku

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón