A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Dagskrá Hörmungardaga

| 25. febrúar 2021
Frá Hörmungardögum 2015
Frá Hörmungardögum 2015
Mörgum þótti síðasta ár lengi að líða, hörmungar, pestir og margvísleg ótíðindi hafa einkennt síðustu misseri. Í fréttatímum dynja á fólki allskonar upplýsingar um yfirvofandi ógnir og hamfarir og hörmungar á heimsvísu. Á þessum erfiðu tímum er hátíðin Hörmungadagar kærkomin tilbreyting. Þessi gleðskapur, þar sem ýmislegt frekar erfitt, dapurlegt og jafnvel bragðvont hefur verið á dagskránni verður því haldin á Ströndum helgina 25.-28. febrúar. Þar verður tekist á við margvísleg vandamál og áskoranir með tveimur hrútshornum. Í fyrra greindist fyrsta Covid-smitið á Íslandi í lok Hörmungadaga, en nú er ætlunin að ljúka hátíðinni með því að peppa liðið upp! Það er félagið Arnkatla – lista- og menningarfélag sem stendur fyrir Hörmungadögum, ásamt góðum samstarfsaðilum í héraðinu. Frumkvæðissjóður Sterkra Stranda styður við uppátækið og fær bestu þakkir fyrir.

Fimmtudagur 25. feb.
20:00 Lifandi streymi frá Ozon: Söfnun fyrir Kvennaathvarfið

Föstudagur 26. feb.
12:15 Hvatastöðin stendur fyrir Dansað gegn ofbeldi í Hnyðju að fyrirmynd UN Women - öll velkomin
12:30-15:00 Opið hús í Þróunarsetrinu á Hólmavík - Höfðagötu 3
13:00 Rannsóknasetur HÍ á Ströndum með upplestur á margvíslegum Strandahörmungum í beinni á vefnum
19:00 Draugaganga út í Orrustutanga frá Sauðfjársetrinu (ekki fyrir mjög ung börn og viðkvæmar sálir)
21:00 Hörmungarkviss á vegum Galdrasýningarinnar, Arnar S. Jónsson sér um spurningarnar á Zoom og Kahoot!

Laugardagur 27. feb.
11:00-19:00 Hörmungarganga upp á Sjónvarpshæð. Við hvetjum fólk til að fara í sína eigin hörmungargöngu upp á Sjónvarpshæð. Á toppnum verður kassi með verðlaunum með þemanu hörmungar sem finnast á hverju heimili
12:00-19:00 Hörmulegt ljósmyndamaraþon á vegum Augnabliksins - ljósmyndaklúbbs Arnkötlu
13:00 Rannsóknasetur HÍ á Ströndum með upplestur á margvíslegum Stranda hörmungum á vefnum
14:00 Námskeið í sjálfsvorkunn með Svavari Knúti í Hnyðju
15:00 Kyrrðarkraftur kynnir verkfæri gegn streituhörmungum í Hnyðju
18:00 Leiksýning frá Leikfélagi Hólmavíkur um galdramál og Klemus - á vefnum
20:00 Hörmungartónleikar með Svavari Knúti á Galdrasýningunni, verð 2000 kr.

Sunnudagur 28. feb.
11:00-19:00 Hörmungarganga upp á Sjónvarpshæð. Við hvetjum fólk til að fara í sína eigin hörmungargöngu upp á Sjónvarpshæð. Á toppnum verður kassi með verðlaunum með þemanu hörmungar sem finnast á hverju heimili
12:00-19:00 Hörmulegt ljósmyndamaraþon á vegum Augnabliksins - ljósmyndaklúbbs Arnkötlu
13:00 Rannsóknasetur HÍ á Ströndum með upplestur á margvíslegum Stranda hörmungum á vefnum
14:00 Hörmungarkaffi á Sauðfjársetrinu. Á boðstólnum verður Hungursneið og kaffi. Dagrún Ósk þjóðfræðingur segir frá Plágum og pestum og Dúllurnar og Anna Björg verða með tónlistaratriði, svokallað hörmungarkvein - í raunheimum og streymi.
18:00 Strandapepp í lok Hörmungadaga með Pálmari Ragnarssyni fyrirlesara - á vefnum

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón