A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Dagskrá Hörmungardaga

| 17. febrúar 2015

Veturinn er mörgum erfiður. Hann er langur, kaldur, dýr og óútreiknanlegur. Á Hörmungardögum gefst okkur tækifæri til að njóta allra þessara ömurlegheita saman og reyna að gera gott úr þeim… eða bara líða enn ver yfir hlutskipti okkar í slæmum félagsskap annarra furðufugla.

 

Til að létta ykkur lundina á þessum erfiðu tímum mun Félagsmiðstöðin Ozon standa fyrir knúskeppni, en allir vita að knús getur læknað flest allt og lætur öllum líða betur. Þátttakendur geta nálgast eyðublað á Facebook-síðu Hörmungardaga, í Kaupfélaginu á Hólmavík, pósthúsinu eða á Skrifstofu Strandabyggðar. Knúskeppnin hefst miðvikudaginn 18. febrúar og stendur til mánudagsins 23. febrúar en eyðublöðum með undirskriftum knúsaðra skal skila til tómstundafulltrúa þriðjudaginn 24. febrúar.

 

 

Fylgist vel með á www.facebook.com/hormungardagar og www.strandabyggd.is

 

 

Föstudagurinn 20. febrúar

11:30 – 12:30     Opinn heimalærdómur í dreifnámi FNV, Hafnarbraut 19.

12:30 – 13:00     Danspartý í Hnyðju. Fallegum dansi og góðri tónlist ekki lofað.

13:00 – 14:00     Opið hús í Grunnskólanum á Hólmavík.

13:00 – 15:00     Menning og samfélag. Málþing um menningarmiðlun á Kaffi Galdri.

14:00                 Kökubasar leikskólans Lækjarbrekku í KSH

18:00 – 20:00     Pizza á Café Riis

21:00                Hryllingsmyndabíó í ungmennahúsinu Fjósinu, Hafnarbraut 19. (16+)

21:00                Café Riis. Pub quiz og opinn bar fram eftir nóttu. (18+)

 


 

Laugardagurinn 21. febrúar

11:00               Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur leiðir sniðgöngu. Gengið verður að ljótari stöðum Hólmavíkur og                                 sagðar leiðinlegar sögur um óáhugaverð málefni. Lagt af stað frá bensíndælum N1 við gömlu                                           sjoppuna. Frítt.

12:00 – 14:00     Brunch á Café Riis.

13:00 – 16:00     Opið hús í leikskólanum Lækjarbrekku. Bíósýning, leiksvæði, sala á skrani og listasmiðja. Kaffi og te                                   í boði og popp og djús til sölu.

13:00 – 16:00     Harpa Ósk Lárusdóttir, vefarinn ungi frá Borðeyri, sýnir gaddavírskjól, vefnað og önnur verk í                                           Hnyðju, Höfðagötu 3.

15:00               Kaffi Galdur. Kynning á Turtle filmfest og frumsýning á stiklu hátíðarinnar. Kaffi og með því til sölu og                               opinn hljóðnemi fyrir þá sem vilja létta á sér, nöldra, kvarta eða segja frá leyndarmáli.

20:00 – 23:00     Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir stórsýninguna Sweeney Todd: Morðóða rakarann við Hafnargötuna.                                   Félagsheimilið á Hólmavík. Miðasala hjá Ester í síma 693-3474.

 

 

Sunnudagurinn 22. Febrúar

Konudagur

12:00 – 14:00     Brunch á Café Riis.

13:00 – 16:00     Harpa Ósk Lárusdóttir, vefarinn ungi frá Borðeyri, sýnir gaddavírskjól, vefnað og önnur verk í                                           Hnyðju, Höfðagötu 3.

14:00 – 16:30     Opið hús hjá Félagi eldri borgara í Flugstöðinni, spil, kaffi og spjall. Öll velkomin.

16:00               Sauðfjársetur á Ströndum. Kaffihlaðborð, 1.500 kr. fyrir fullorðna og 800 kr. fyrir 6-12 ára.                                               Klukkan 16:00 flytur Jón Jónsson þjóðfræðingur erindi sem kallast „Hugleiðing um hörmungarlíf:                                       Stutta-Sigga, Jóhann-beri og fleira fólk.“

20:00               Eyvindur Karlsson - One Bad Day. Hörmungarlög á Kaffi Galdri. Aðgangur ókeypis.

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón