A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Auglýst er eftir verkefnastjóra hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða á Hólmavík

| 05. júní 2015

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða leitar að verkefnastjóra sem gæti hafið störf sem fyrst á skrifstofu félagsins á Hólmavík.  Um er að ræða 100% starf  og er ráðningartíminn til loka ágúst 2016.  Möguleiki er á framlengingu ráðningarsamningsins fyrir réttan aðila.

Helstu verkefni

  • Viðskiptaráðgjöf til frumkvöðla, fyrirtækja og sveitarfélaga
  • Verkefnastýring á fjölbreyttum þróunarverkefnum
  • Greiningarvinna á svæðisbundnum aðstæðum á Ströndum og Reykhólum
  • Bakvinnsla fyrir viðskiptagreiningar og greiningar á tækifærum fyrir alla Vestfirði
  • Þátttaka í stærri þróunarverkefnum sem ná yfir Vestfirði
  • Önnur almenn nýsköpunar- og þróunarverkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Umburðarlyndi fyrir sveigjanlegu starfsumhverfi og fjölbreyttum verkefnum
  • Góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Lausnamiðun í starfi

Atvest er…

Fjölskylduvænn vinnustaður og lögð er áhersla á vel starfandi liðsheild. Hjá félaginu starfa 6 verkefnastjórar sem öll hafa sérhæfða þekkingu og talsverða reynslu í atvinnuþróunarverkefnum. 

Atvest vinnur í krefjandi starfsumhverfi þar sem stærstu hagsmunaðilar eru atvinnulíf og sveitarfélög svæðisins.  Markmið Atvest er að vinna að verðmætasköpun í gegnum fjölbreytt atvinnuþróunarverkefni sem styrkja atvinnulíf svæðisins.

Umsókn

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri félagsins Shiran Þórisson, shiran@atvest.is.  Sendið umsóknir á tölvupósti. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá.  Umsóknarfrestur er til og með 16. júní og stefnt er að því að svara umsóknum fyrir lok júní mánaðar.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón