A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinna í boði

Salbjörg Engilbertsdóttir | 02. mars 2015

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara eða leiðbeinanda í 87,5% starf og er vinnutíminn 9:00-16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.


Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og  jákvæðni mikilvægur kostur.

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is


Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3. Umsóknafrestur er til 9.mars 2015. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur. 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón