A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinna - Leikskólinn Lækjarbrekka

| 02. maí 2014

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf og er vinnutíminn 8:00-16:00. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur.

 

Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi síðar en 2. júní.

 

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 eða til leikskólastjóra, ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 9. maí 2014. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón