A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Áheitasöfnun – Brellurnar hjóla Vestfjarðahringinn

| 24. maí 2011
Brellurnar í startholunum - ljósm. www.facebook.com
Brellurnar í startholunum - ljósm. www.facebook.com

Tilgangur ferðarinnar er að safna áheitum fyrir Fríðu Eyrúnu Sæmundsdóttur, Patreksfirði. Fríða er 37 ára og er nýorðin lögblind. Eins og gefur að skilja hefur það ýmsar breytingar í för með sér. Aðbúnaður og breytingar sem snúa að heimilinu og kaup á tölvu sem styður forrit eins og talgervil eru meðal annars hlutir sem munu bæta lífsgæði Fríðu til muna. Verndarar söfnunarinnar eru Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar og Halla Dís Hallfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur við á St. Fransciskusspítala í Stykkishólmi og einn trúnaðarmanna Blindrafélagsins. Halla er lögblind, hún er með hrörnunarsjúkdóm í augnbotnum sem kallast RP (retinitispigmentosa). Áheitunum verður safnað þannig að fólk verður beðið um að heita einhverri vissri upphæð á hvern km. Ef fólk vill má það líka láta einhverja vissa upphæð ganga til þessa verðuga málefnis og leggja hana inn á söfnunarreikninginn 153-05-23 Kt:100674-3199.

 

Gengið verður í hús á Patreksfirði, Tálknafirði, Barðaströnd og Bíldudal dagana 31. maí - 3.júní  til að safna áheitum.

 

Búið er að stofna Facebooksíðu,  Brellurnar,  endilega fylgist með þar.

 

Brellurnar vona að það muni ekki taka meira en eina viku að hjóla þessa leið. Það getur þó tekið lengri tíma ef veður verður ekki gott eða ef eitthvað annað kemur upp á. Skipulag ferðarinnar er eftirfarandi:


Lagt af stað frá Patreksfirði kl. 14.15 á Sjómannadaginn.
 

Dagur 1: Hjólað í Flókalund ca. 61 km

Dagur 2: Hjólað í Fjarðarhorn 63.7 km

Dagur 3: Hjólað til Hólmavíkur 108 km

Dagur 4: Hjólað í Heydal 108 km

Dagur 5: Hjólað til Súðavíkur 115 km

Dagur 6: Hjólað í Mjólká 93.4 km

Dagur 7: Hjólað á Patreksfjörð 98.3 km

 

Ef allar komast alla leið eru þetta um 3.240 km.


0,5 kr á km = 1.620          4 kr á km = 12.960 

1 kr á km = 3.240             5 kr á km = 16.200

1,5 kr á km = 4.860          6 kr á km = 19.440

2 kr á km= 6.480              7 kr á km = 22.680

2,5 kr á km= 8.100            8 kr á km = 25.920

3 kr á km= 9.720              9 kr á km = 29.160

3,5 kr á km= 11.340          10 kr á km = 32.400

 

Við treystum á ykkar stuðning!

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón