A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Aðalskipulag Strandabyggðar

| 12. janúar 2010
 

Síðastliðin rúm tvö ár hefur verið unnið að gerð aðalskipulags fyrir Strandabyggð og sér nú loks fyrir endann á þeirri vinnu.  Var gengið til samninga við Landmótun sem hefur haft veg og vanda af undirbúningi og framkvæmd skipulagsins.  Búið er að setja inn ýmsar skýrslur ásamt drögum að forsendum sem og skipulagstillögu á heimasíðu Strandabyggðar undir liðnum Aðalskipulag og eru íbúar hvattir til að kynna sér þær.

 

Til að hægt verði að ljúka allri skýrslugerð þurfa íbúar Strandabyggðar að senda inn ábendingar eða breytingartillögur til sveitarstjórnar fyrir hádegi mánudaginn 25. janúar n.k. svo koma megi þeim áfram til starfsfólks Landmótunar.  Mun sveitarstjórn ásamt undirnefndum eiga svo vinnufund með Landmótun 28. janúar n.k. þar sem farið verður yfir allar breytingartillögur og ábendingar.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón