A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórnarfundur Strandabyggðar nr. 1378, 10.06.2025

Sveitarstjórnarfundur 1378, haldinn í Hnyðju 10.06.2025

 

Mætt voru:  Þorgeir Pálsson, Grettir Örn Ásmundsson, Júlíana Ágústsdóttir, Matthías Sævar Lýðsson, Hlíf Hrólfsdóttir og Heiðrún Harðardóttir, sem ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð alla velkomna. 

 

Spurt um athugasemdir við fundarboðun. Engin athugasemd var gerð við fundarboðun.

 

Oddviti lagði því næst fram tillögu að afbrigði, sem er, afgreiðsla sveitarstjórnar á grenndarkynningu vegna uppsetningar á rafmagnshleðslustöð á bílaplani N1.  Erindið yrði þá númer 26 á dagskrá. 

 

Samþykkt samhljóða.

 

 

Þá var gengið til umræðu.

 

Umræða.

 

1. Erindi frá nemendum í Grunnskólanum á Hólmavík, vegna Vinabæ, 4.6.25


Oddviti rakti tilurð þessa máls, þar sem fram kom að grunnskólakrakkar sendu inn kvörtunarbréf vegna þess að spýtur og annað efni var óvart fjarlægt af leiksvæði þeirra við tjaldsvæðið.  Sagði oddviti það vilja sveitarstjórnar að mæta óskum þeirra um leiksvæði eins og kostur væri.  

 

Oddviti lagði til að sveitarstjóri og Tómstundafulltrúi myndu ræða og móta tillögur að framtíðarlausn fyrir álíka leiksvæði fyrir krakkana. 

 

Því næst gaf oddviti orðið laust.

 

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti lagði til að sveitarstjóri og Tómstundafulltrúi ásamt forstöðumanni eignasjóðs myndu ræða og móta tillögur að framtíðarlausn fyrir álíka leiksvæði fyrir krakkana. 

 

Samþykkt samhljóða.

 

2. Lántaka Strandabyggðar hjá Lánasjóði sveitarfélaga nr. 2506_32, 2506_33 og 2506_34 


Oddviti rakti tilurð máls og gaf orðið laust.

 

Viðauki vegna láns nr. 2506 32 hljómar á þessa leið:

 

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán númer 2506 32 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 25.000.000,- með lokagjalddaga þann 20 febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi,
auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68.
gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til
sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að fjármagna verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið framkvæmdir og endurbætur á grunn- og leikskóla sveitarfélagsins sem fellur undir skilgreiningu 7.2. skv. reglugerð ESB nr. 2139/2021 en uppfyllir ekki öll skilyrðin með jákvæðum hætti. Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Strandabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

 

Viðauki vegna láns nr. 2506 33 hljómar á þessa leið:

 

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán númer 2506 33 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 15.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi,
auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68.
gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til
sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að fjármagna verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið vegna fráveitu í sveitarfélaginu sem fellur undir skilgreiningu 5.3. skv. reglugerð ESB nr. 2139/2021 en uppfyllir ekki öll skilyrði með jákvæðum hætti. Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Strandabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

 

Viðauki vegna láns nr. 2506 34 hljómar á þessa leið:

 

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán númer 2506 34 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 30.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi,
auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68.
gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til
sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til að fjármagna verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið endurfjármögnun afborgana á eldri lánum sveitarfélagsins hjá Lánasjóðnum sem fellur ekki undir reglugerð ESB nr. 2139/2021. Jafnframt er Þorgeiri Pálssyni, sveitarstjóra, kt. 100463-5989, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Strandabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti lagði til að lánasamningarnir yrðu samþykktir.  Samþykkt samhljóða.

 

3. Viðauki II 

Oddviti rakti tilurð þessa máls.  Ljóst væri að framkvæmdir við leikskólalóðina hefðu dregist mjög og að kostnaður við aðföng hefði aukist á þeim tíma.  Nú væri hins vegar komið að því að hefja framkvæmdir við þetta langþráða verkefni og gengið hefði verið formlega frá samning við Litla Klett um að hefja framkvæmdir við endurgerð leikskólalóðarinnar. 

 

Lagður er fram svohljóðandi viðauki II við fjárhagsáætlun Strandabyggðar vegna ársins 2025 á fundi sveitarstjórnar þann 10. Júní 2025.

Framkvæmdir: Framkvæmdir vegna verkþáttar 1 við endurgerð leikskólalóðarinnar við Lækjarbrekku á Hólmavík, hafa dregist svo mánuðum skiptir og hefur kostnaður því hækkað á þeim tíma. Upphaflega ver gert ráð fyrir kr. 15.milljónum í fyrri verkþátt en kostnaður samkvæmt verktakasamningi er nú 16.735.825.- Framkvæmdir við verkþátt 1 hefjast 10. júní 2025, samkvæmt verksamningi. Samtals hækkun framkvæmda kr. 1.735.825.- Greitt með greitt með tilfærslu innan deildar.

 

Oddviti gaf orðið laust.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Oddviti lagði til að viðaukinn verði samþykktur. 

Samþykkt samhljóða.

 

 

4. Verktakasamningur vegna leikskólalóð, 5.6.25, til kynningar 


Oddviti rakti tilurð þessa máls og vísaði í lið 3 þar um.  Samningurinn er lagður fram til kynningar.

 

Oddviti gaf orðið laust.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

A listi leggur fram eftirfarandi bókun:

 

„Er það ásættanlegt að þegar verktaki er ráðinn að sveitarfélagið sjái um fæði og gistingu? Þetta er í raun óútfylltur tékki þar sem ekki er gert ráð fyrir að neinu þaki á greiðslur á dag vegna fæðis eða gistingar.

Ýmis ákvæði í samningnum koma undarlega fyrir sjónir þegar verið er að gera verktakasamning s.s. eins og ákvæði um lífeyrisgreiðslur og fl.

Á fundi sveitarstjórnar þann 13.8.2024 var tekinn fyrir liðurinn verksamingur við Litla Klett vegna leikskólalóðar. Samningurinn var ekki afgreiddur á þeim fundi en en gerð var eftirfarandi bókun: „Matthías óskar eftir að bóka, að þar sem ekki eru komin endaleg gögn verði endanlegur samningur ekki frágenginn fyrr en að gögnin eru komin, sem er þá væntanlega á næsta fundi sveitarstjórnar.“ Samingurinn hefur ekki verið tekinn fyrir á sveitarstjórnarfundi síðan fyrr en nú 10 mánuðum seinna og þá er lagður fram undirritaður samningur.

Samningur gerir ráð fyrir að verktaki geti tekið sér 2 mánuði til að klára verkið. Á meðan þarf sveitarfélagið að greiða mat og gistingu fyrir starfsmenn Litla kletts/Kröflu. Í frett á heimasíðu sveitarfélagsins stendur aftur á móti: „.....Þeir áætla tvær vikur í sinn verkhluta.“ Þarna er ósamræmi á milli, hvort er rétt?”

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Sveitarstjórn gleðst yfir því að framkvæmdir séu hafnar og að það sé áætlað að vinnan taki einungis tvær vikur þó samningur hljóði upp á tvo mánuði.

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

5. Ákvörðun um sölu á eignarhlut í Hornsteinum 


Oddviti rakti tilurð þessa máls og vísaði til þess að umræða um sölu á þessum eignarhlut væri ekki alveg ný af nálinni.  Það þyrfti hins vegar að skoða vel verðmæti þessa eignarhlutar áður en hann yrði seldur.  Það væri hins vegar ljóst, að þessi eignarhlutur væri betur settur hjá fagfjárfestum eða þeim fjárfestum sem hyggðu á frekari uppbyggingu verslunar og þjónustu á svæðinu.  Því næst gaf oddviti orðið laust.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

A listi leggur fram eftirfarandi bókun:

 

„A-listi eru undrandi yfir þeim rangfærslum sem koma fram í minnisblaði oddvita frá 5.6.2025 vegna eign Strandabyggðar í Hornsteinum  fasteingarfélagi ehf. Strandabyggð keypti 44,6% hlut í Hornsteinum af Kaupfélagi Streingrímsfjarðar en Hólmadrangur á ennþá sinn hlut.

Í samþykktum fyrir Hornsteina kemur fram að félagið sjálft á fyrsta forkaupsrétt á eignarhlut sem er til sölu. Annar forkaupsréttur er hjá þeim sem fyrir eiga hlut í félaginu. Forkaupsréttarhafar geta ekki tekið afstöðu um hvort þeir nýti forkaupsréttinn fyrr en tilboð liggur fyrir.

Á þessum fundi er hægt að taka ákvörðum um að selja hlut Strandabyggðar Hornsteinum fasteingafélagi ehf. Síðan verður að auglýsa að hluturinn sé til sölu og svo ákveða hvort tilboði sé ásættanlegt fyrir Strandabyggð.

Gott væri að fá verðmat í eignina til að sveitarstjórn geti hafi það til viðmiðunar við mat á tilboðum,. Líklega eru endurskoðendur Strandabyggðar best til þess fallnir að gera slíkt verðmat.“

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls.

 

Oddviti lagði til að fenginn yrði óháður aðili til að meta verðmæti eignarhlutarins og að hann yrði því næst auglýstur til sölu.  Einnig lagði oddviti til að kallað verði eftir því meðal hluthafa, hvort forkaupsréttarákvæði verði nýtt.  Sveitarstjóra væri falið að framfylgja þessari afgreiðslu allri, í samráði við lögfræðing sveitarfélagsins.  Samþykkt samhljóða.

 

6. Tillaga að „Verndarsvæði í byggð - Hólmavík“ 


Oddviti gaf málshefjanda, Matthíasi Sævari Lýðssyni, orðið.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Matthías Sævar Lýðsson leggur fram eftirfarandi bókun:

„Rannsóknarsetur Háskóla Íslands í þjóðfræði/Þjóðfræðistofa hefur nú lagt fram tillögu að Verndarsvæði í byggð á Hólmavík.

Matthías leggur til að tillagan verði gerð aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins og óskað eftir umsögnum, athugasemdum og/eða viðbótum. Í lok ágúst verði svo haldinn opinn kynningarfundur um tillöguna og sveitarstjórn tæki tillöguna svo til afgreiðslu á fundi sínum í þann 10. september næstkomandi.“

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti leggur til að tillagan sé samþykkt.

 

Samþykkt samhljóða.

 

7. Veggirðingar og aðrar girðingar 


Oddviti gaf málshefjanda, Matthíasi Sævari Lýðssyni, orðið.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

A listinn leggur fram eftirfarandi bókun:

„A-listinn leggur til að Strandabyggð sjái til þess hið fyrsta að veggirðing ofan vegar frá Grjótá að Hrófá verði gerð fjárheld. Rök fyrir því eru meðal annars að Strandabyggð stóð að því að girðingin var sett upp á sínum tíma. Vegagerðin hafði farið fram á að ristarhlið sem afmörkuðu þéttbýlið með girðingum yrðu fjarlægð og þar með þær girðingar sem tengdust þessum ristarhliðum. Eins og sýndi sig í fyrra þegar ekki var gert við girðinguna kom fé m.a. niður í garða á Hólmavík. Einnig var fé í kringum vatnsból Hólmvíkinga, þar sem engin girðing er þar uppistandandi lengur. A-listinn leggur til að sveitarfélagið geri átak í að taka upp girðingar sem lokið hafa hlutverki sínu á landi sveitarfélagsins. Girðingar sem eru lýti í umhverfinu og eru varasamar fyrir menn og dýr. Eins leggur A-listinn til að sveitarfélagið skori á aðra landeigendur að gera slíkt hið sama í samræmi við Girðingarlög nr. 135/2001.“

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti tók undir tillöguna og ætlar að sjá til þess að viðhald við girðingar sveitarfélagsins verði í lagi.  

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti leggur til að tillögurnar verði samþykktar. Samþykkt samhljóða.

 

8. Umgengni á víðavangi


Oddviti gaf málshefjanda, Matthíasi Sævari Lýðssyni, orðið.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

A listinn leggur fram eftirfarandi bókun:

„A-listinn vekur athygli á umgengni á víðavangi t.d. í Réttarvík en einnig á fleiri stöðum í sveitarfélaginu. Þar hafa safnast upp hlutir sem ekki eiga að vera og þurfa að komast hið fyrsta í réttan farveg – förgun eða til síns heima. A-listinn leggur til að forstöðumanni Eignasjóðs verði falið að gera tillögu að úrbótum.“

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti kallaði eftir samþykki vegna tillögu A-lista. Samþykkt samhljóða.

 

9. Erindi frá VERKÍS, Umsókn um framkvæmdaleyfi - Kvíslatunguvirkjun, undirbúningsframkvæmdir, 5.6.25 

Oddviti rakti tilurð máls og taldi afar brýnt að framkvæmdir hæfust eins og leyfilegt væri, meðan beðið væri eftir staðfestingu Skipulagsstofnunar á deiliskipulagi svæðisins.  Oddviti gaf orðið laust.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti lagði til að beiðni um framkvæmdaleyfi verði samþykkt á grunni gildandi aðalskipulags.  Samþykkt samhljóða. Sveitarstjóra er falið að tilkynna hlutaðeigandi.

 

10. Erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, mál FRN25060032, Ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandveiðiskipulag fyrir Vestfirði, 5.6.25 

Oddviti reifaði tilurð máls og lagði til að Þorgeir Pálsson verði aðalmaður og að Matthías Sævar Lýðsson verði varamaður af hálfu Strandabyggðar. 

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls. Hann leggur til að núverandi aðalmaður Strandabyggðar, Hafdís Sturlaugsdóttir, verði áfram aðalmaður í svæðisráði um strandsvæðaskipulag fyrir Vestfirði.

 

Þorgeir Pálsson tók til máls og leggur til að hann verði þá varamaður í svæðisráðinu fyrir Strandabyggð.

 

Oddviti kallaði eftir samþykki vegna tillögu Matthíasar og að Þorgeir Pálsson verði varafulltrúi. Samþykkt samhljóða.

 

11. Erindi frá Atvinnuvegaráðuneyti, mál ATRN25050200, Niðurfelling Kollafjarðalínu - framsal girðingar, 4.6.25 


Oddviti bað Matthías Sævar Lýðsson að gera grein fyrir eðli máls.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls. Hann er mótfallinn því að Strandabyggð eignist girðinguna og vísar í skyldur ráðuneytisins til að fjarlægja girðinguna.

 

Oddviti kallar eftir samþykki við tillögu Matthíasar. Samþykkt samhljóða.  


12. Erindi frá Ísafjarðarbæ, Sameining sveitarfélaga á Vestfjörðum, 2.6.25 


Oddviti rakti tilurð máls.  Ljóst er að umræða um sameiningar hefur komist á gott skrið og í því liggja tækifæri sem vert er að skoða vel.  Lagði oddviti til að sveitarstjórn myndi taka jákvætt í erindið en um leið yrði vísað í það viðræðuferli sem komið væri á gagnvart öðrum sveitarfélögum.  Orðið gefið laust.

 

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls.

 

Sveitarstjórn tekur vel í erindið og er jákvæð um samtal um sameiningar. Samþykkt samhljóða. Sveitarstjóra er falið að tilkynna Ísafjarðarbæ.

 

13. Erindi frá Vinum íslenskrar náttúru, Skipulag skógræktar - leiðbeiningar um val á landi til skógræktar, 4.6.25 


Oddviti bað Matthías Sævar Lýðsson að gera betur grein fyrir málinu.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Erindi lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og góða áminningu.

14. Fræðslunefnd, fundargerð frá 5.6.25 


Oddviti, sem formaður nefndarinnar, gerði grein fyrir efni fundarins. 

 

Oddviti vill hrósa starfsmönnum leikskóla, grunnskóla og starfsmönnum áhaldahúss vegna vinnu við flutning leikskólabarna upp í grunnskóla. Starfsmenn hafa staðið sig vel í að aðlaga húsnæðið að þörfum leikskólabarnanna. Einnig hafa starfsmenn áhaldahúss lokað lóð grunnskóla vel af til að tryggja öryggi barnanna.

 

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

15. Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd, fundargerð frá 3.6.25 


Oddviti bað formann nefndarinnar, Júlíönu Ágústsdóttur, að gera grein fyrir fundinum. 

 

Júlíana Ágústsdóttir tók til máls.

 

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Oddviti leggur til að greiða atkvæði um tillögu nefndarinnar um að skipta stöðu forstöðumanns íþróttamiðstöðvar/tómstundafulltrúa í tvö störf, annars vegar sem íþrótta- og tómstundafulltrúa og hins vegar forstöðumaður íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls og óskar eftir að það fari fram kostnaðargreining á aðskilnaði starfa.

Matthías leggur einnig til að sveitarstjórn taki undir þakkir til fráfarandi forstöðumanns íþróttamiðstöðvar/tómstundafulltrúa fyrir störf í þágu Strandabyggðar. Samþykkt samhljóða.

 

Meirihluti sveitarstjórnar, fjórir af fimm, eru samþykkir að skipta stöðunni í tvö störf en eru sammála tillögu Matthíasar um að kostnaðargreina aðskilnað starfa í haust. Matthías Sævar Lýðsson situr hjá.  

 

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

16. Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundargerð frá 28.5.25 


Oddviti bað formann nefndarinnar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir fundinum.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

17. Kvíslatunguvirkjun - deiliskipulagstillaga 


Oddviti bað formann US nefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir erindinu.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls. Með tilvísun í lið 1 í fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar.

 

„Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að Kvíslatunguvirkjun bæti framboð á endurnýjanlegri raforku og auki raforkuöryggi á Vestfjörðum. Virkjunin minnki notkun á jarðefnaeldsneyti og bæti þar með kolefnishlutleysi Íslands og styður við stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulag Kvíslatunguvirkjunar skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga með ofangreindum lagfæringum.“

 

Oddviti kallar eftir samþykki sveitarstjórnarfulltrúa um tillögu nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.

 

18. Deiliskipulag Jakobínutúns


Oddviti bað formann US nefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir erindinu.

 

„Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið og vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá 3. apríl 2025.“

 

Samþykkt með fjórum atkvæðum. Júlíana Ágústsdóttir situr hjá.

 

19. Deiliskipulag Brandskjóla 


Oddviti bað formann US nefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir erindinu.

 

„Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið og vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá 3. apríl 2025. Umhverfis- og skipulagsnefnd vekur athygli á við uppbyggingu í Brandskjólum verði gert ráð fyrir tveimur aðkomuleiðum í hverfið. (Vinnuvegur verði frá Jakobínutúni).“

 

Þorgeir Pálsson tók til máls. Hann nefnir að mögulegur vinnuvegur geti verið að ofanverðu frá vatnstanki. Það þarf að skoða það vel með tilliti til öryggis.

 

Deiliskipulag Brandskjóla samþykkt samhljóða.

 

20. Erindisbréf Umhverfis- og skipulagsnefndar 


Oddviti bað formann US nefndar, Matthías Sævar Lýðsson, að gera grein fyrir erindinu.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

„Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindisbréfið verði samþykkt. Umhverfis- og skipulagsnefnd vekur athygli á að erindisbréfið verði endurskoðað á fyrsta fundi nýrrar Umhverfis- og skipulagsnefndar eftir sveitarstjórnarkosningar.“

 

Tillaga nefndarinnar og erindisbréf samþykkt samhljóða.

21. Þorgeir Pálsson, umsókn um færslu á gestahúsi til Stóru Grundar 


Þorgeir Pálsson bað varaoddvita, Gretti Örn Ásmundsson, að taka við fundinum og vék af fundi og Marta Sigvaldadóttir tók sæti hans.   

 

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

„Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina. Umsóknin hins vegar gefur tilefni til þess að skýra lóðarmörk innan Hólmavíkur.“

 

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Tillaga nefndarinnar um að samþykkja umsóknina er samþykkt samhljóða.

 

Marta vék af fundi og Þorgeir tók sæti sitt að nýju.

 

22. Vinnuskýrsla sveitarstjóra 


Orðið gefið laust.

 

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

A listi leggur fram eftirfarandi bókun:

„Í vinnuskýrslu sveitarstjóra kemur ekki fram að hann hafi átt nokkur samskipti við Bláma sem tók að sér að senda inn umsóknir í nafni Strandabyggðar til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, vegna jarðhitaborana á Gálmaströnd og uppsetningu fjarvarmaveitu á Hólmavík. Það er afar athyglsvert og ekki síður sú staðreynd að aðeins ein umsókn var send í verkefnið „Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita“. Tvær umsóknir voru nærri tilbúnar í lok apríl eða eins og kemur fram í í tölvupósti frá forstöðumanni Bláma þann 28. apríl sendum til Þorgeirs Pálssonar. Einhverntímann í maí hefur svo verið tekin ákvörðun um að senda ekki inn umsókn um jarðhitaboranir á Gálmaströnd. Sú ákvörðun var ekki borin undir sveitarstjórn á reglulegum fundi í maí né á annan hátt.“

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Þorgeir Pálsson tók til máls.


Oddviti stöðvar umræðu. Matthías tekur undir með oddvita að komið er að endastöð umræðunnar.

23. Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða, fundargerð 17.18. og 19. fundar, 12.5.25, 26.5.25 og 3.6.25 


Lagt fram til kynningar.

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Fundargerðir að öðru leyti lagðar fram til kynningar.

24. Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerð 81. stjórnarfundar, 21.5.25 


Lagt fram til kynningar.

 

Þorgeir Pálsson tók til máls.

 

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

25. Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerð 979. og 980. fundar, 16.5.25 og 27.5.25 


Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

Enginn tók til máls.

 

26.  Afgreiðsla á grenndarkynningu vegna uppsetningar á hleðslustöð á bílaplani N1s. 


Oddviti rakti eðli máls og lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun og afgreiðslu sveitarstjórnar: „Sveitarstjórn Strandabyggðar þykir miður að grenndarkynning var ekki framkvæmd á sínum tíma, en þá höfðu komið í ljós upplýsingar sem drógu úr mikilvægi þess að grenndarkynna framkvæmdina. Í 44. gr. skipulagslaga sem fjallar um grenndarkynningar, kemur fram að skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Engu að síður hefði átt að grenndarkynna þar sem það var bókað af nefndinni og staðfest af sveitarstjórn. Þann 30. 5 sl. var grenndarkynning borin til íbúa nærliggjandi húsa og til stjórnenda Hornsteina. Gildistími þeirrar kynningar var til 6.6 sl. Fram komu ábendingar sem sveitarstjórn svarar með eftirfarandi hætti:

• Rétthafi lóðarinnar er N1 og er samningur þar um í fullu gildi. Rétthafinn hyggst auka þjónustu við íbúa og aðra sem koma til Hólmavíkur

• Umrædd hleðslustöð mun standa á miðsvæði (áður verslunar- og þjónustussvæði), ekki innan íbúðarbyggðar skv. aðalskipulagi.

• Engin hávaðamengun, né önnur mengun hlýst af stöðinni

• Fjarlægð hleðslustöðvar er vel innan marka frá öllum hlutaðeigandi

• Tilkynningarskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi. Framkvæmdin kallar því ekki á byggingarleyfi, heldur er aðeins tilkynningaskyld skv. byggingarreglugerð 2.3.6. (i) [Smádreifistöðvar fyrir raforkudreifingu, dæluhús hita-, vatns- og fráveitu og önnur lítil hús veitukerfa sem eru að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.]4). Grenndarkynning var því í raun óþörf skv. 44. gr. skipulaglaga.

• Snjósöfnun og snjómokstur. Snjósöfnun er talin mun minni með breyttri staðsetningu spennistöðvar og því er breytingin til bóta. Þá eru öll hleðslustæðin, þar með við eyjurnar, með snjóbræðslukerfi

• Aðgengi og bílastæði á svæðinu. Það liggur fyrir að þetta plan, sem áður hýsti þjónustuskála, er og verður notað sem bílastæði. Gert er ráð fyrir að framundan sé uppbygging frekari þjónustu við bíleigendur og aðra, af hálfu rétthafa lóðarinnar

• Öryggi gangandi og akandi vegfarenda. Ekki er séð hvernig hleðslustöðin ætti að auka hættu fyrir gangandi vegfarendur.

Þarna verður, vegna notkunar svæðisins, alltaf nokkur umferð bíla og trukka.

Vilji sveitarstjórnar stendur til þess að ná sátt við alla hlutaðeigandi og hafa fulltrúar N1‘s, Orkubús Vestfjarða og Tesla á Íslandi þegar staðfest samþykki sitt með breytta tillögu að staðsetningu spennistöðvar. Sveitarstjórn framlengir því tímaramma grenndarkynningarinnar um eina viku, eða til kl 12 á hádegi, 18 júní n.k. Eftir þann tíma hefjast framkvæmdir að nýju, í þeirri breyttu mynd sem gerð hefur verið grein fyrir.“

 

Orðið gefið laust.

 

Hlíf Hrólfsdóttir tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

A listi leggur fram eftirfarandi bókun:

„Á fundi sveitarstjórnar þann 12. nóvember 2024 var eftirfarandi samþykkt undir lið 20: „Varðandi lið nr. 4, sem er uppsetning á rafbílahleðslustöðum frá Teslu, beinir US nefnd því til sveitarstjórnar að fela byggingarfulltrúa að grenndarkynna framkvæmdina. Samþykkt samhljóða.“ Það er á verksviði sveitarstjóra að sjá til þess að samþykktum sveitarstjórnar sé fylgt eftir. Í þessu tilfelli var það ekki gert, með tilheyrandi óþægindum og kostnaði fyrir Strandabyggð og aðra sem að málinu koma.“

 

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

Grettir Örn Ásmundsson tók til máls. Grettir Örn gengst við mistökum við framkvæmd grenndarkynningar.

Þorgeir Pálsson tók til máls.

Matthías Sævar Lýðsson tók til máls.

 

Oddviti lagði til að bókunin yrði samþykkt og Skipulagsfulltrúa falið að tilkynna hlutaðeigandi um niðurstöðuna, auk þess sem Skipulagsfulltrúi myndi staðfesta upphaf verks að nýju gagnvart verktaka.  Samþykkt samhljóða.

 

 

Fleira ekki gert. Fundargerð lesin yfir og fundi slitið kl 18:53.

Hljóðupptöku má finna hér. Við mælum með að hlaða niður upptökunni. 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón