Fræðslunefnd, fundur 04.06.2025
Fundargerð
Fundur fræðslunefndar Strandabyggðar haldinn í Hnyðju, Höfðagötu 3, miðvikudaginn 4. júní 2025. Fundur hófst kl 16.31. Mætt eru Heiðrún Harðardóttir, Steinunn Magney Eysteinsdóttir, Júlíana Ágústsdóttir í stað Vignis Rúnars Vignissonar, Guðfinna Lára Hávarðardóttir er fjarverandi og ekki náðist að boða varamann, Kristín Anna Oddsdóttir fyrir foreldrafélag, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri, Jóhanna B. Ragnarsdóttir fyrir leikskóla, Vala Friðriksdóttir fyrir grunnnskóla og Þorgeir Pálsson sem ritaði fundargerð.
Fundardagskrá:
- Mat á starfsáætlun - Mat á starfsáætlun leik- og grunnskóla Strandabyggðar 2024-2025
- Innramatsskýrsla - Grunnskóli Strandabyggðar og leikskólinn Lækjabrekka - Langtíma, ársáætlun, fundaáætlun og umbótaáætlun
- Önnur mál
Formaður bauð fundarmenn velkomna og kallaði eftir athugasemdum við fundarboðun. Engar athugasemdir voru gerðar.
Umræða
1. Mat á starfsáætlunFormaður gaf skólastjóra, Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur orðið. Skólastjóri rakti efni skýrslunnar og helstu breytingar. Fram kom ábending um nauðsyn rýmingaræfinga í leikskóla. Formaður kallaði eftir því að tenging við skýrsluna verði send á foreldra. Fram kom ábending um að fara aftur í framhaldsskólakynningar. Einnig var bent á þörfina fyrir varanlegra rými fyrir tónlistarkennslu og bókasafn. Fram kom að EFLA verður fengin til að kanna ástand bóka á bókasafni og meta hugsanlegar aðgerðir.
2. Innramatsskýrsla
Formaður gaf skólastjóra, Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur orðið. Skólastjóri rakti helstu þætti innramats og útskýrði skipulag matsins. Fundarmenn fögnuðu viðamiklu skjali og lýstu ánægju sinni með góða vinnu. Ljóst að mikill árangur hefur náðst.
3. Önnur mál.
- Leikskólalóðin. Formaður sagði frá framkvæmdum næstu vikna og mánaða.
Fundi slitið kl 18.06
Þorgeir Pálsson, ritari