A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 28.05.2025

Fundargerð

 

Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 28 maí 2025, kl. 16:00. að Hafnarbraut 25, á Hólmavík.

Fundinn sátu: Matthías Sævar Lýðsson formaður, Atli Már Atlason, Ragnheiður Ingimundardóttir, Júlíana Ágústsdóttir og Hlynur Torfi Torfason skipulagsfulltrúi sat fundinn í fjarfundarbúnaði ásamt Gretti Erni Ásmundssyni sem ritar fundargerð.

 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

 

1.Kvíslatunguvirkjun – deiliskipulagstillaga til afgreiðslu eftir auglýsingu.


Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi Kvíslatunguvirkjunar til afgreiðslu að lokinni auglýsingu í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir byggingu allt að 9,9 MW vatnsorkuvers, Kvíslatunguvirkjun, í Selárdal í Strandabyggð.

Tillagan var auglýst frá 20. desember 2024 til 20. febrúar 2025 samhliða endurskoðuðu Aðalskipulagi Strandabyggðar 2022-2034 sem markar stefnu um virkjunina. Níu umsagnir bárust um auglýsta tillögu. Engin athugasemd barst frá almenningi, sbr. framlagt minnisblaði  um umsagnir og viðbrögð, dags. 4. mars 2025. Gerðar voru lagfæringar á á greinargerð tillögunnar til að bregðast við umsögnum, þær eru eftirfarandi:

  • Skerpt á skilmálum um fornleifaskráningu við Hraunavatn í kafla 2.3. Fornleifar.
  • Bætt inn ákvæðum um óbyggð víðerni úr Landskipulagsstefnu í kafla 2.7 um náttúruvernd.
  • Bætt hefur verið við ákvæðum til að valda sem minnstu raski á bökkum við ár og vötn og viðhalda náttúrulegum bakkagróðri (kaflar 3.3 og 3.4).

Deiliskipulagstillagan er sett fram í greinargerð ásamt umhverfisskýrslu og á níu deiliskipulagsuppdráttum. Öll gögnin eru dags. 29. nóvember 2024. Greinargerðin var uppfærð eftir auglýsingu í mars 2025. 

 

Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að Kvíslatunguvirkjun bæti framboð á endurnýjanlegri raforku og auki raforkuöryggi á Vestfjörðum. Virkjunin minnki notkun á jarðefnaeldsneyti og bæti þar með kolefnishlutleysi Íslands og styður við stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulag Kvíslatunguvirkjunar skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga með ofangreindum lagfæringum.

 

2. Deiliskipulag Jakobínutúns


Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið og vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá 3. apríl 2025.

 

3. Deiliskipulag Brandskjóla


Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið og vísar í fyrri bókun nefndarinnar frá 3. apríl 2025.

Umhverfis- og skipulagsnefnd vekur athygli á við uppbyggingu í Brandskjólum verði gert ráð fyrir tveimur aðkomuleiðum í hverfið. (Vinnuvegur verði frá Jakobínutúni)

 

4. Erindisbréf Umhverfis- og skipulagsnefndar Strandabyggðar.


Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindisbréfið verði samþykkt. Umhverfis- og skipulagsnefnd vekur athygli á að erindisbréfið verði endurskoðað á fyrsta fundi nýrrar Umhverfis- og skipulagsnefndar eftir sveitarstjórnarkosningar.


5. Þorgeir Pálsson Stóra Grund, umsókn um færslu á gestahúsi til Stóru Grundar.


Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsóknina. Umsóknin hins vegar gefur tilefni til þess að skýra lóðarmörk innan Hólmavíkur


6. Önnur mál.
a. Ragnheiður Ingimundardóttir leggur til við sveitarstjórn að leggja göngustíg/hjólastíg meðfram þjóðveginum t.d. frá Hólmavík að Sævangi, að fyrirmynd frá Selfossi til Eyrarbakka.

 

b. Júlíana Ágústsdóttir leggur til við sveitarstjórn að lúpínan sé slegin innan bæjarmarkana á réttum tíma. Júlíana nýtur eindregins stuðnings nefndarmanna.

 

c. Matthías Lýðsson lýsir yfir áhyggjum af umgengni í Réttarvík, netaafskurður, brotajárn og ýmiskonar úrgangur sé þar á víðavangi og er þar slysahætta af og almenn mengun.

 

d. Matthías Lýðsson leggur áherslu á að þörf er á, að umráðamenn lands og jarða fjarlægi girðingaleyfar sem að fyrir löngu hafa lokið sínu hlutverki. Þar þarf sveitarfélagið að ganga á undan og sína fordæmi.

 

e. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að flýta fyrir uppbyggingu Lillaróló á Jakobínutúni eins hratt og mögulegt er.

 

Fundi slitið kl 18:06

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón