A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf í Strandabyggð 2019

Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. febrúar 2019


Ath! umsóknarfrestur v. vinnuskóla framlengist til sunnudagsins 24.mars

 

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í sumarstöf hjá stofnunum sveitarfélagsins sumarið 2019. Um er að ræða eftirtalin störf við þessar deildir:

Íþróttamiðstöð Strandabyggðar 

Áhaldahús Strandabyggðar

Tómstundasvið-Umsjón með sumarnámskeiði

Umsjónarmaður Vinnuskóla Strandabyggðar

Liðveisla með fötluðum börnum
Félagsþjónusta- starfsmaður í búsetu hjá fatlaðri mannekju
Vinnuskóli Strandabyggðar 13-17 ára

Upplýsingar um störfin má nálgast hér.

Hægt er að skila umsóknum beint inn í gegnum google forms með þessari slóð hér eða sækja eyðublað sem er birt hér.

 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3 og er umsóknarfrestur til og með 19. mars 2019. Jafnframt er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Á umsókn skal koma skýrt fram um hvaða starf er sótt. Ef sótt er um fleiri en eitt starf skal koma fram hvaða starf er fyrsti valkostur og hvað er til vara. Jafnframt skal taka fram ef viðkomandi getur ekki unnið allt sumarið og þá hvenær starfsmaðurinn þarf frí.


Athugið að Strandabyggð er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður.

 

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má finna hér.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón