A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf aðalbókara Sýslumanns

Salbjörg Engilbertsdóttir | 18. ágúst 2023

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum


Laus er til umsóknar staða aðalbókara við embættið.

Um er að ræða starf til eins árs með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum.
Starfshlutfall er 50% en möguleiki á hækkuðu starfshlutfalli fljótlega og er vinnutími að einhverju marki sveigjanlegur.
Æskileg starfstöð er á skrifstofu embættisins á Patreksfirði en einnig er möguleiki að sinna starfinu á skrifstofu embættisins á Hólmavík eða Ísafirði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um launakjör fer eftir gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst nk. Umsókn skal skilað í gegnum umsóknarkerfi Alfred.is og þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og því hvernig umsækjandi fellur að hæfnikröfum til starfans.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar um starfið veita Jónas B. Guðmundsson, sýslumaður, netfang jg@syslumenn.is og Helga Dóra Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, netfang hdk@syslumenn.is eða í síma 458 2400.


Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með almennu bókhaldi embættisins
Annast uppgjör og gerð rekstraráætlana
Frágangur reikninga og eftirfylgni á greiðslu þeirra
Önnur verkefni


Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun og reynsla af bókhaldsstörfum æskileg
Einhver þekking og reynsla af reikningshaldi og áætlanagerð
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Þekking og kunnátta á helstu tölvukerfi
Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni og þjónustulund
Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

Starfshlutfall er 50% en möguleiki á hækkuðu starfshlutfalli fljótlega og er vinnutími að einhverju marki sveigjanlegur
Æskileg starfstöð er á skrifstofu embættisins á Patreksfirði en einnig er möguleiki að sinna starfinu á skrifstofu embættisins á Hólmavík eða Ísafirði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um launakjör fer eftir gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttar-félags.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón