A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðtöð og frístund_framlengt

Salbjörg Engilbertsdóttir | 01. september 2023
Laus er staða frístundaleiðbeinanda við félagsmiðstöðina Ozon og í frístund eftir skólalok.  Um er að ræða 40% stöðu og fer vinna fram eftir skólalok og fram eftir degi og í kvöldopnun vikulega.

Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna og unglinga í gengum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva er börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára. Frístundaþjónusta er í boði fyrir nemendur grunnskóla í 1.-4. bekk eftir skólalok og til kl. 16.00.

Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvarinnar. Starfað er í anda lýðræðis á starfsstaðnum og markvisst er unnið að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu. 

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag og umsjón með hópum, verkefnum og viðburðum í menningar-, félags- og tómstundastarfi barna og ungmenna í samráði við tómstundafulltrúa. 
  • Leiðbeinir börnum í faglegu frístundastarfi sem mætir þeirra þörfum hverju sinni.
  • Vinnur í anda lýðræðis og eykur sjálfstæði, ábyrgð og virkni barna og ungmenna markvisst í starfinu.
  • Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum eru falin og falla undir starfssviðið.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er æskileg.
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Metnaður í starfi og hæfni til að vinna í hóp
  • Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Um er að ræða 40% hlutastarf. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.

Starfsmaður þarf að geta byrjað sem fyrst.

Umsóknarfrestur til miðnættis 15. september og skal umsóknum skilað á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is ásamt ferilskrá.

Nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri 4513510 eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón