A A A

Valmynd

Fréttir

Hamingjulagið 2012

Vornótt á Ströndum - hamingjulagið 2011
Vornótt á Ströndum - hamingjulagið 2011

Enn á ný hefur verið ákveðið að efna til stórskemmtilegrar, gefandi, hamingjuríkrar og spennandi lagasamkeppni vegna Hamingjudaga á Hólmavík. Skilafrestur á lagi í keppnina er til föstudagsins 4. maí, en keppnin sjálf verður haldin kl. 20:00 laugardagskvöldið 12. maí. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður. Sigurvegarinn í keppninni fær peningaverðlaun að upphæð kr. 50.000, en um leið skuldbinda menn sig til að koma sigurlaginu í útgáfu sem hæfir til útvarpsspilunar.

Allar reglur varðandi keppnina má nálgast með því að smella hér.

Skila þarf inn lögum á geisladiski í síðasta lagi föstudaginn 4. maí, merkt Hamingjudagar á Hólmavík - Lagasamkeppni 2011, Höfðagata 3, 510 Hólmavík. Úrslitakeppnin fer svo fram í félagsheimilinu á Hólmavík og munu áhorfendur eins og venjulega velja sigurlagið í kosningu.


Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá tómstundafulltrúa Strandabyggðar, Arnari Snæberg Jónssyni, í netfanginu tomstundafulltrui@strandabyggd.is eða í síma 894-1941. 

+++

Allt frá fyrstu Hamingjudögunum árið 2005 hefur verið haldin lagasamkeppni til að leita að hinu eina sanna Hamingjulagi hverrar hátíðar. Keppnin féll þó niður árið 2009, en það hafði samt engin áhrif á hamingjuna það árið. Hamingjulögin hafa samt haft sitt að segja til að kveikja stemmningu, stuð og gleði í hjörtum hátíðargesta. Lögin hafa jafnan verið tekin upp og gefin út á geisladiskum.


Hér fyrir neðan gefur að líta sigurlag hvers árs, flytjendur og höfunda.

2011 - Vornótt á Ströndum
Flytjendur: Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir og Elín Ingimundardóttir
Lag og texti: Ásdís Jónsdóttir

2010 - Óskalagið
Flytjandi: Söngtríóið Vaka
Lag og texti: Ásdís Jónsdóttir

2008 - Ég vil dansa
Flytjandi: Salbjörg Engilbertsdóttir
Lag og texti: Ásdís Jónsdóttir

2007 - Hólmavík er best
Flytjandi: Arnar S. Jónsson
Lag og texti: Arnar S. Jónsson

2006 - Á Hamingjudögum
Flytjendur: Bjarni Ómar Haraldsson og Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir
Lag og texti: Daníel Birgir Bjarnason

2005 - Hamingudagar á Hólmavík
Flytjandi: Kristján Sigurðsson og Lára Guðrún Agnarsdóttir
Lag: Kristján Sigurðsson
Texti: Ásgerður Ingimarsdóttir

Facebook

Hamingjumyndir

Vefumsjón