Menningarverðlaun 2019
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar auglýsir eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar árið 2019
Í ár verður Lóan, menningarverðlaun Strandabyggðar, veitt í tíunda skiptið. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Hefur sú hefð skapast að verðlaunaafhending fari fram við setningu Hamingjudaga.
Ása Ketilsdóttir kvæða- og rímna skáld hlaut heiðursverðlaun og Dagrún Ósk Jónsdóttir, fyrir hönd Náttúrubarnaskólans, hlaut menningarverðlaunin 2018 en fyrri verðlaunahafar eru Sigríður Óladóttir kórstjórnandi, Leikfélag Hólmavíkur, Sauðfjársetrið (tvisvar sinnum), Grunnskólinn á Hólmavík, Þjóðfræðistofa á Ströndum, Einar Hákonarson listamaður og Steinshús við Djúp.
Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.
Tilnefningum, ásamt rökstuðningi, má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is til kl.16:00 fimmtudaginn 6.júní.
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum.
little big snake, föstudagur 24 maí kl: 07:50
Það er yndislegt menningarstarf, það verðskuldar að fá þennan verðlaun!
happy wheels, miðvikudagur 29 maí kl: 09:54
Very impressive at the same time, i'm going to be making - was stupendous! Thanks so much.
gmail login, þriðjudagur 01 október kl: 04:26
Thanks for Nice and Informative Post. This article is really contains lot more information about This Topic.
Russell & Bromley Outlet, þriðjudagur 22 október kl: 02:03
Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.
geometry dash, miðvikudagur 22 maí kl: 02:50
Til hamingju með sigurvegara