A A A

Valmynd

Fréttir

Menningarverðlaun 2019

| 13. maí 2019

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar auglýsir eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar árið 2019

Í ár verður Lóan, menningarverðlaun Strandabyggðar, veitt í tíunda skiptið. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Hefur sú hefð skapast að verðlaunaafhending fari fram við setningu Hamingjudaga. 

Ása Ketilsdóttir kvæða- og rímna skáld hlaut heiðursverðlaun og Dagrún Ósk Jónsdóttir, fyrir hönd Náttúrubarnaskólans,  hlaut menningarverðlaunin 2018 en fyrri verðlaunahafar eru Sigríður Óladóttir kórstjórnandi, Leikfélag Hólmavíkur, Sauðfjársetrið (tvisvar sinnum), Grunnskólinn á Hólmavík, Þjóðfræðistofa á Ströndum, Einar Hákonarson listamaður og Steinshús við Djúp.

Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.

Tilnefningum, ásamt rökstuðningi, má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is til kl.16:00 fimmtudaginn 6.júní.

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum.

 

Facebook

Hamingjumyndir

Vefumsjón