A A A

Valmynd

Fréttir

Hverfisstjórar

| 25. júní 2017
Sigurrós og Siggi Marri reka fyrirtæki í appelsínugula hverfinu og taka reksturinn alvarlega
Sigurrós og Siggi Marri reka fyrirtæki í appelsínugula hverfinu og taka reksturinn alvarlega
Venja hefur skapast fyrir því að útnefna hverfisstjóra fyrir Hamingjudaga.
Hlutverk hverfisstjóra er að halda uppi stemmningu fyrir hátíðina. Það er í þeirra höndum að skipuleggja hverfispartý og auglýsa það (t.d. með því að senda upplýsingar á tómstundafulltrúa). Hverfisstjórar hvetja einnig íbúa og fyrirtæki í hverfinu til að taka virkan þátt í hátíðinni með skreytingum, bakstri eða almennri gleði. Það er löngu vitað mál að hverfisstjórar eru skemmtilegasta fólkið í Strandabyggð og þar sem þeir eru, þar ríkir hamingja.

Gula hverfið (dreifbýli): Steina í Gröf
Rauða hverfið (frá þjóðvegi að Sýslumannshalla): Sabba
Appelsínugula hverfið (milli sýslumannshalla og kirkju): Steinar og Dæja
Bláa hverfið (innan við kirkju): Íris og Egill

Það er ekki alfarið á ábyrg hverfisstjóra að gera góða hátíð að veruleika, það er sameiginlegt verkefni okkar allra. Ef þið eruð með hugmyndir, ábendingar, eða langar að aðstoða er kjörið að setja sig í samband við sinn hverfisstjóra.
Athugið að hverfin eru ekki bara fyrir íbúa, þau gilda líka fyrir gestkomandi og ekki síst fyrirtæki á svæðinu. 

Facebook

Hamingjumyndir

Vefumsjón