A A A

Valmynd

Fréttir

Hólmavíkurrallý

| 18. júní 2017
Pétur bakari á fullri ferð
Pétur bakari á fullri ferð

Á Hamingjudögum fer fram rallýkeppni sem Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur stendur fyrir.

Keppnin er önnur umferð Íslandsmótsins í ralli og reiknað er með um 20 áhöfnum að þessu sinni.  Eknar verða leiðir í nágrenni Hólmavíkur, Tröllatunguheiði ásamt leiðinni um Kaldrananes.  

Viðgerðarhlé verður í Hólmavík frá hálfeitt til hálftvö. Viðgerðarhlé í ralli hefur þá sérstöðu að þar má oft sjá snarlegar viðgerðir þar sem jafnvel kútoltnir bílar eru lagfærðir á mettíma.

Samansöfnun og verðlaunaafhending fer fram á hátíðarsvæði Hamingjudaga að keppni lokinni. Að venju verða áhafnirnar með bíla sína þar og jafnvel einhvern glaðning handa gestum og gangandi.

Allar nánari upplýsingar um rallýið má nálgast á heimasíðu Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur.

Facebook

Hamingjumyndir

Vefumsjón