A A A

Valmynd

Fréttir

Hamingjudagar 2012 tókust frábćrlega

| 06. júlí 2012
Sćla á Hamingjudögum - ljósm. IV
Sćla á Hamingjudögum - ljósm. IV
Nú eru Hamingjudagar á Hólmavík að baki. Hátíðin gekk frábærlega. Blíðviðri var alla helgina og mikill fjöldi fólks heimsótti Strandabyggð í hamingjuleit. Á laugardeginum var fjöldi sölubása í Fiskmarkaðnum, Leikhópurinn Lotta sýndi Stígvélaða köttinn á Klifstúni, fólk gat skoðað listsýningar, skellt sér í gokart, siglingu, á hestbak, til teiknara eða miðils svo fátt eitt sé nefnt.


Um kvöldið var síðan blásið til Hnallþóruhlaðborðs sem var afskaplega glæsilegt þetta árið. Hvanndalsbræður lokuðu síðan laugardagsskemtuninni með fjölsóttum dansleik í Félagsheimilinu. Á sunnudegi kíktu menn síðan í vel sótta Léttmessu, golfmót eða frábæra Furðuleika Sauðfjárseturs á Ströndum.

Við þökkum öllum fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur öll að ári! Til hamingju!

Facebook

Hamingjumyndir

Vefumsjón