A A A

Valmynd

Fréttir

Furðuleikar

| 20. júní 2017
Sigurlið í trjónufótfolta
Sigurlið í trjónufótfolta

Hinir árlegu Furðuleikar á Ströndum verða að venju haldnir á sunnudaginn um hamingjudagahelgina, þann 2. júlí og hefjast kl. 13:00.

Þarna verður að venju mikið fjör og gleði fyrir alla fjölskylduna, Strandamenn, nærsveitunga og gesti sem koma saman og leika sér í furðulegum leikjum öllum til gleði og ánægjuauka. Skemmtilegar og árvissar keppnisgreinar eins og öskurkeppnin ógurlega og trjónufótboltinn verða á sínum stað og svo verður eitthvað nýtt og furðulegt í bland.


Dásamlegt kaffihlaðborð verður á boðstólum í kaffistofu Sauðfjársetursins verð 1.800.- fyrir 13 ára og eldir, 1.000.- fyrir 7-12 ára og frítt fyrir yngri, frítt verður inn á allar sögusýningar í tilefni dagsins.

Sauðfjársetrið er staðsett í félagsheimilinu Sævangi. Það stendur við þjóðveg 61 og er 12 km sunnan við Hólmavík, það er opið alla daga frá klukkan 10-18.

Sauðfjársetrið er skemmtilegur áningastaður fyrir fólk á öllum aldri. Þar er fastasýningin Sauðfé í sögu þjóðar ásamt tveim minni sýningum: Álagablettir á Ströndum og Sumardvöl í sveit. Þar er einnig handverksbúð, barnahorn og kaffihúsið Kaffi Kind. Einnig eru á Sauðfjársetrinu tveir heimalningar sem gestum og gangandi er boðið að gefa og vekur mikla lukku! Á Sauðfjársetrinu er haldið mikið af viðburðum, til dæmis Furðuleikarnir í júní og Hrútadómar í ágúst.

Facebook

Hamingjumyndir

Á leið upp úr Hvalsárdal að norðanverðu (vestanverðu). Þá hafði þokubakkinn úr Húnaflóanum slegist í hópinn. Á myndinni eru Ingimundur Einar Grétarsson, Jónína Hólmfríður Pálsdóttir, Kristinn Schram og Hadda Borg Björnsdóttir.

(Ljósm. og © Stefán Gíslason).
Vefumsjón