Innskráning

A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Opnunartími í Íþróttamiðstöð um páskahátíðina

25. mars 2024 | Salbjörg Engilbertsdóttir
Opnunartími um páska 2024 er hér:

Skírdagur - opið 11:00-15:00

Föstudagurinn langi - LOKAÐ
Laugardagur - opið 11:00-15:00
Páskadagur - LOKAÐ
Annar í páskum: opið 11:00-15:00

Gleðilega páskahátið og hlökkum til að sjá ykkur!


Sveitarstjórnarfundur nr. 1359, aukafundur hjá sveitarstjórn Strandabyggðar

24. mars 2024 | Salbjörg Engilbertsdóttir

Fundur nr. 1359 í sveitarstjórn Strandabyggðar, sem er aukafundur, verður haldinn mánudaginn 25. mars 2024 að Hafnarbraut 25 kl 12.00.  

Fundardagskrá er svohljóðandi:

  1. Trúnaðarmál.

Fundurinn er lokaður.

Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:

Þorgeir Pálsson

Jón Sigmundsson

Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir
Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir

Sveitarstjórnarfundur í Strandabyggð, nr 1359 - aukafundur - frestun

21. mars 2024 | Þorgeir Pálsson
Áður boðuðum sveitarstjórnarfundi nr. 1359 í sveitarstjórn Strandabyggðar, aukafundi, er frestað og verður nýr fundur boðaður síðar.

Kveðja
Þorgeir pálsson
Oddviti

Sveitarstjórnarfundur í Strandabyggð, nr 1359 - aukafundur

20. mars 2024 | Þorgeir Pálsson

Fundur nr. 1359 í sveitarstjórn Strandabyggðar, sem er aukafundur, verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2024 að Hafnarbraut 25 kl 20.00.  Hamli veður og færð, verður tryggt að hægt verður að halda fundinn í fjarbúnaði. 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

  1. Trúnaðarmál.

Fundurinn er lokaður.

Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:

Þorgeir Pálsson

Jón Sigmundsson

Grettir Örn Ásmundsson

Guðfinna Lára Hávarðardóttir

Ragnheiður Ingimundardóttir

 

Laus staða deildarstjóra í leikskólanum Lækjarbrekku

15. mars 2024 | Bára Örk Melsted

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir deildarstjóra í leikskólann Lækjarbrekku. Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík er samrekinn leik-grunn- og tónskóli með um 40 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Í leikskóladeildinni eru tveir hópar, eldri og yngri.

 

Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla og flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Fylgt er uppeldisstefnu jákvæðs aga. Skólinn er grænfánaskóli og stefnir að því að vera heilsueflandi skóli. Um er að ræða 100% starf.

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2024. Sótt er um hér.

 

Helstu verkefni deildarstjóra:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
  • Stýrir faglegu starfi deildarinnar
  • Ber ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar

Helstu kröfur um menntun og hæfni:

  • Starfsleyfi sem leikskólakennari eða önnur uppeldis- eða kennaramenntun
  • Reynsla af starfi á leikskóla
  • Stjórnunarreynsla og reynsla af mannaforráðum
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Hreint sakavottorð

Dreymir þig um hæglátari lífstíl? Fallega náttúru í bakgarðinum og að tilheyra í litlu samfélagi? Strandabyggð skiptist í Hólmavík og dreifbýlið og er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni miðja vegu milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, en sömuleiðis er margt spennandi fram undan. Þá má helst nefna fyrirhugaða hótelbyggingu, atvinnuuppbyggingu, nýtt íbúðarhverfi, unnið er að endurbótum á grunn- og leikskóla og svona mætti lengi telja.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. 

 

Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, netfang skolastjori@strandabyggd.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi, stefania@hagvangur.is

Laus staða Tónlistarkennara

15. mars 2024 | Bára Örk Melsted

Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftir tónlistarkennara með deildarstjórn til að kenna á ýmis hljóðfæri auk undirleiks, kenna tónfræði, stjórna barnakór og rokkhljómsveit eldri nemenda og tónmennt á yngsta stigi.

 

Fullt starf 100% er í boði frá 1. ágúst 2024 en hlutfall deildarstjórnunar fer eftir stigum skóla. Umsóknarfrestur er til 02. apríl 2024 sótt er um hér

 

Tónskólinn á Hólmavík er samrekinn grunn-, leik- og tónskóli og er vel búinn hljóðfærum, staðsettur í Grunnskólanum á Hólmavík. Kennt hefur verið á eftirfarandi hljóðfæri: blokkflauta, þverflauta, píanó, gítar, bassi, ukulele, fiðla, trommur, trompet og saxófónn. Áhersla er lögð á fjölhæfni í hljóðfæraleik, samspil af ýmsu tagi, fjölbreytni í tónlist og framþróun í kennsluháttum. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Viðkomandi þarf að geta kennt nemendum grunnskólaaldri á fjölbreytt hljóðfæri
  • Einnig þarf viðkomandi að geta leikið undir með nemendum skólans
  • Kostur er ef viðkomandi getur kennt á mörg hljóðfæri og tónfræðigreinar, stjórnað barnakór og hljómsveit og kennt tónmennt

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í tónlist æskilegt eða tónlistarnám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af kennslustörfum og meðleik æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Dreymir þig um hæglátari lífstíl? Fallega náttúru í bakgarðinum og að tilheyra í litlu samfélagi? Strandabyggð skiptist í Hólmavík og dreifbýlið og er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni á austanverðum Vestfjörðum. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, en sömuleiðis er margt spennandi fram undan. Þá má helst nefna fyrirhugaða hótelbyggingu, atvinnuuppbyggingu, nýtt íbúðarhverfi, unnið er að endurbótum á grunn- og leikskóla og svona mætti lengi telja.

 

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (FT eða FÍH). 

 

Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, skolastjori@strandabyggd.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi, stefania@hagvangur.is

Fleiri fréttir

Strandir.is - fréttir

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón