A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Félagsmálaráð - 10. mars 2010

Miðvikudaginn 10. mars 2010 var haldinn fundur í Félagsmálaráði Strandabyggðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 18:15. Mætt voru Bryndís Sveinsdóttir, Gunnar Melsted, Jensína G. Pálsdóttir og Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Formaður setti fundinn og stjórnaði honum en fyrir lá eftirfarandi dagskrá:

 

  1. Trúnaðarmál.
  2. Reglur Strandabyggðar um fjárhagsaðstoð.
  3. Önnur mál.

 

Þá var gengið til dagskrár.

 

  1. Trúnaðarmál. Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók.
  2. Reglur Strandabyggðar um fjárhagsaðstoð. Lagðar eru fram til samþykktar reglur Strandabyggðar um fjárhagsaðstoð. Reglurnar eru samþykktar samhljóða.
  3. Önnur mál: Mál fært í trúnaðarbók.

 

Fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fleira ekki gert og fundi slitið 19:25.

 

Bryndís Sveinsdóttir  (sign)    Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir (sign)   

Jensína G. Pálsdóttir  (sign)    Gunnar Melsted  (sign)    Ásdís Leifsdóttir (sign)                 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón