A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fundargerð Ungmennaráðs - 10. mars 2016

Fundur var haldinn í Ungmennaráði Strandabyggðar fimmtudaginn 10. mars kl. 20:00 í Fjósinu, ungmennahúsi Hólmavíkur, Hafnarbraut 19. Mættir voru: Arnór Jónsson, Bára Örk Melsted, Elísa Mjöll Sigurðardóttir og Máney Dís Baldursdóttir. Gunnur Arndís Halldórsdóttir boðaði forföll. Fundargerð skrifaði Íris Ósk Ingadóttir.

Fundur er settur.

Á fundardagskrá var eftirfarandi:

  1. Barnamenningarhátíð Vestfjarða
    a) Farið yfir skipulag hátíðarinnar og rætt aðkomu ungmennaráðs að hátíðinni. Meðlimir ungmennaráðs ætla aðstoða tómstundafulltrúa við upplýsingasöfnun yfir hátíðina.

  2. Stefnumótun í sveitarfélaginu
    a) Upplýsingar bárust fyrir fundinn frá sveitarstjórn um verðandi íbúafund vegna stefnumótunar þar sem sérstaklega er óskað eftir þátttöku ungs fólks á íbúafundinum því þar búa mikilvægar skoðanir og upplýsingar fyrir stefnumótunina. Ungmennaráð er sammála mikilvægi þess að raddir ungs fólks heyrist í svona vinnu og ætlar að leggja sitt að mörkum að vekja athygli á stefnumótuninni hjá ungu fólki. Ungmennaráð hvetur sveitarstjórn að fara í skóla sveitarfélagsins og kynna fyrir ungu fólki hvað stefnumótun sé og hvernig þau geta komið sínum skoðunum til skila.

  3. Sumarstörf í sveitarfélaginu
    a) Ungmennaráð telur að það sé mikilvægt að hafa fræðslu um launamál, skatta og stéttafélög hluta af vinnuskólanum.
    b) Ungmennaráð hvetur til þess að einstaklingar sem eru í vinnu hjá sveitarfélaginu yfir vetrartímann fái forgang í vinnu yfir sumartímann hjá sveitarfélaginu.

  4. Form ungmennaráðs
    a) Fulltrúar ungmennaráðs eru sammála um það að breytinga sé þörf á núverandi fyrirkomulagi ungmennaráðs.
    b) Ungmennaráð stefnir á ferð á Seltjarnarnes að kynna sér starf ungmennaráðs þar.

  5. Hitaveita
    a) Farið var yfir upplýsingar frá íbúafundin um hitaveitu.

  6. Önnur mál
    a) Enginn önnur mál

 

Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið 21:30.      

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón