A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórn Strandabyggðar 1265 - 12.september.2017

Sveitarstjórnarfundur 1265 í Strandabyggð


Fundur nr.  1265 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn þriðjudaginn 12. september 2017 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson (J) bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Auk Jóns Gísla sátu fundinn  Ásta Þórisdóttir (J) , Ingibjörg Emilsdóttir(J), Haraldur V. A. Jónsson (F) og Jóhann Björn Arngrímsson (E). Ingibjörg Emilsdóttir ritaði fundargerð. 

 

Ein athugasemd var gerð við fundarboðið. Ekki var fundað í umhverfis- og skipulagsnefnd og er því liður nr. 13 felldur úr dagskrá.

Jón Gísli lagði til að tekinn yrði fyrir liður 8 fyrstur af öllum. Samþykkt samhljóða.

 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

  1. Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
  2. Erindi frá Félagi eldri borgara í Strandasýslu vegna stofnunar Öldungaráðs, dagsett 5/9/2017
  3. Frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga;  Samgönguáætlun 2018-2029. Endurskoðun stefnu í samgöngumálum, dagsett 31/8/2017
  4. Erindi frá sveitarstjóra: ósk um heimild til að undirrita afsal og þar með taka við flugstöðvarbyggingunni við flugvöllinn á Hólmavík fyrir hönd sveitarfélagsins, dagsett 6/9/2017
  5. Erindi frá Þórhildi Hinriksdóttur, ósk um kaup á flugstöð, móttekið 7/9/2017
  6. Upplýsingar um slökkvibifreið vegna ákvörðunar um kaup, dagsett 6/9/2017
  7. Erindi vegna betri nýtingar á Dreifnámshúsi, dagsett 4/9/2017
  8. Rammi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018
  9. Skýrsla forstöðumanna og sveitarstjóra
  10. Fundargerð stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 23/8/2017
  11. Fundargerð 396. fundar stjórnar Hafnarsambands Ísland frá 25/8/2017
  12. Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 11/09/2017
  13. 13.   Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá xxxxx

Þá var gengið til dagskrár.

  1. Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags.
    Sveitarstjórn samþykkir umsóknina.
  2. Erindi frá Félagi eldri borgara í Strandasýslu vegna stofnunar Öldungaráðs, dagsett 5/9/2017.
    Sveitarstjórn fjallar um málið og samþykkir að fela Maríu Játvarðardóttur, félagsmálastjóra að vinna að stofnun öldungaráðs.
  3. Frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga;  Samgönguáætlun 2018-2029. Endurskoðun stefnu í samgöngumálum, dagsett 31/8/2017.
    Lagt fram til kynningar.
  4. Erindi frá sveitarstjóra: Ósk um heimild til að undirrita afsal og þar með taka við flugstöðvarbyggingunni við flugvöllinn á Hólmavík fyrir hönd sveitarfélagsins, dagsett 6/9/2017.
    Sveitarstjórn samþykkir með fjórum atkvæðum að veita Andreu K. Jónsdóttur sveitarstjóra heimild til að undirrita afsal vegna flugstöðvarbyggingar við flugvöllinn á Hólmavík og þar með taka við eigninni fyrir hönd sveitarfélagsins, Jón Gísli sat hjá við afgreiðslu erindisins.
  5. Erindi frá Þórhildi Hinriksdóttur, ósk um kaup á flugstöð, móttekið 7/9/2017
    Sveitarstjórn Strandabyggðar hyggst ekki selja flugstöðvarbygginguna við flugvöllinn á Hólmavík. Komi til þess síðar meir að sveitarstjórn hyggist selja flugstöðina verður hún auglýst til sölu og óskað eftir tilboðum í hana.
  6. Upplýsingar um slökkvibifreið vegna ákvörðunar um kaup, dagsett 6/9/2017
    Sveitarstjórn fjallar um málið og samþykkir að kaupa slökkvibifreið af gerðinni Man 18-340 403 hestöfl 4x4. Sveitarstjóra er falið að ganga frá kaupsamningi og leggja fram áætlun um fjármögnun fyrir næsta sveitarstjórnarfund.
  7. Erindi vegna betri nýtingar á Dreifnámshúsi, dagsett 4/9/2017
    Sveitarstjórn fjallar um málið og vill bjóða dreifnámsstjóra, tómstundafulltrúa og fræðslumiðstöðvarstjóra á fund og fjalla um málið.
  8. Rammi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018
    Samþykkt samhljóða.
  9. Skýrsla forstöðumanna og sveitarstjóra
    Lagt fram til kynningar.
  10. Fundargerð stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 23/8/2017
    Lagt fram til kynningar.
  11. Fundargerð 396. fundar stjórnar Hafnarsambands Ísland frá 25/8/2017
    Lagt fram til kynningar.
  12. Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 11/09/2017
    Fundargerð lögð fram til samþykktar og samþykkt samhljóða

 

 

Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 17:47

 

Ásta Þórisdóttir

Haraldur V. A. Jónsson

Ingibjörg Emilsdóttir

Jóhann Björn Arngrímsson

Jón Gísli Jónsson

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón