A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórn Strandabyggðar 1203 - 11. desember 2012

Fundur nr. 1203 var haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 11. desember 2012 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson oddviti sveitarstjórnar, bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Einnig sátu fundinn Jón Jónsson varaoddviti, Ásta Þórisdóttir, Bryndís Sveinsdóttir og Viðar Guðmundsson. Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð. 


Gerð er sú athugasemd að liðir 12 og 13 í dagskrá verði felldir út.

 

Dagskrá fundarins var eftirfarandi:

1.         Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2013, síðari umræða.

2.         Gjaldskrárbreytingar

3.         Sorpsamlag Strandasýslu, rekstraráætlun 2013

4.         Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, fjárhagsáætlun 2012

5.         Landgræðsla ríkisins, beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið, dags 19/11/2012

6.         Páll Arnór Pálsson, f.h. Varplands, óskað eftir afstöðu sveitarstjórnar, dags 4/12/2012

7.         Frá Eysteini Gunnarssyni og félögum varðandi byggðakvótamál, dags 4/12/2012

8.         Fjórðungssamand Vestfjarða, beiðni um skipan fulltrúa í samráðshóp vegna sóknaráætlunar Vestfjarða, dags 5/12/2012

9.         Fundargerð Velferðarnefndar

10.     Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar

11.     Fundargerð Atvinnu- dreifbýlis- og hafnarnefndar

12.     Fundargerð Fræðslunefndar

13.     Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar

 

 

Þá var gengið til dagskrár.


1.       Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2013, síðari umræða.

Salbjörg Engilbertsdóttir var kölluð fyrir fundinn þar sem hún fór yfir og útskýrði fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2012.

Rekstrarniðurstaða A-hlutasjóðs sveitarfélagsins er áætlun kr. 6.852.000

Samanlögð rekstrarniðurstaða úr A- og B- hluta sjóðum sveitarfélagsins eru kr. 11.494.000

Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Strandabyggðar 2013 er samþykkt samhljóða.

2.       Gjaldskrárbreytingar

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að jafnaði 6% hækkun á öllum gjaldskrám sveitarfélagsins sem ekki eru tengdar vísitölu, til að mæta verðlagsþróun.

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir 20% hækkun á sorphirðugjaldi.

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir óbreytta fasteignaálagningu. A-gjald í Strandabyggð verður 0,5% af fasteignamati, B-gjald verður 1,32% af fasteignamati og C-gjald verður 1,51% af fasteignamati. Holræsagjald verður 0,25% af fasteignamati og vatnsskattur 0,3% af fasteignamati. Lóðarleiga verður 2,5% af fasteignamati lóðar.

Breytingar á gjaldsrkám taka gildi 1. janúar 2013.

3.       Sorpsamlag Strandasýslu, rekstraráætlun 2013

Kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins Strandabyggðar er áætluð rúmar 18 milljónir. Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykktir fjárhagsáætlun Sorpsamlags Strandasýslu fyrir árið 2013.

4.       Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, fjárhagsáætlun 2012

Afgreiðslu þessarar áætlunar er frestað þar til niðurstaða liggur fyrir af vinnu samstarfshóps um kostnaðarhlutdeild eigenda og gerð nýrra samþykkta fyrir safnið.

5.       Landgræðsla ríkisins, beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið, dags 19/11/2012

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir styrkveitinguna. Sveitarstjórn óskar jafnframt eftir því að fá kynningarfund frá aðstandendum verkefnisins.

6.       Páll Arnór Pálsson, f.h. Varplands, óskað eftir afstöðu sveitarstjórnar, dags 4/12/201

Sveitarstjóra er falið að senda Páli Arnóri Pálssonar upplýsingar um fyrri afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.       Frá Eysteini Gunnarssyni og félögum varðandi byggðakvótamál, dags 4/12/2012

Sveitarstjórn þakkar Eysteini fyrir erindið. Sveitarstjóra er falið að svara erindinu og óska eftir frekari upplýsingum um hvernig sveitarsjtórn geti komið að málinu.

8.       Fjórðungssamand Vestfjarða, beiðni um skipan fulltrúa í samráðshóp vegna sóknaráætlunar Vestfjarða, dags 5/12/2012

Jón Jónsson og Andrea K. Jónsdóttir eru skipuð aðalfulltrúar í samráðshóp vegna sóknaráætlunar Vestfjarða. Til vara eru Viðar Guðmundsson og Ásta Þórisdóttir.

9.       Fundargerð Velferðarnefndar

Liður 2, reglur Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps um fjárhagsaðstoð er samþykkt.
Varðandi lið 3, samþykkt er að hefja undirbúningsvinnu vegna Iðju – Samveruhúss.

Fundargerð samþykkt að öðru leiti.

10.   Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar

Liður 2, varðandi Háafell ehf. Nauteyri samþykkir sveitarstjórn niðurstöðu nefndarinnar.
Liður 3, varðandi skipulagslýsingu vegna Kópnesbrautar samþykkir sveitarstjórn niðurstöðu nefndarinnar.


Fundargerð samþykkt að öðru leiti.

11.   Fundargerð Atvinnu- dreifbýlis- og hafnarnefndar

Liður 2, varðandi erindi frá Hlyn Gunnarssyni varðandi gjaldskrá Hólmavíkurhafnar. Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og samþykkir með fjórum atkvæðum gegn einu að fela hafnarverði að koma með tillögur að útfærslum.

Fundargerð samþykkt að öðru leiti.


Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 18:30.


 

Jón Gísli Jónsson

Jón Jónsson

 

Bryndís Sveinsdóttir

 

Viðar Guðmundsson

Ásta Þórisdóttir

 

 

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón