A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórn - 19. jan. 2010

 

Ár 2010 þriðjudaginn 19. janúar var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar.  Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00.  Valdemar Guðmundsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum en auk hans sátu fundinn Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Jón Gísli Jónsson, Már Ólafsson og Jón Stefánsson.  Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

Þetta var gert:

 

Oddviti kynnti dagskrá fundarins í  6 töluliðum, sem var eftirfarandi:

 

  • 1. Fjárhagsáætlun Strandabyggðar ársins 2010 og þriggja ára áætlun, fyrri umræða.
  • 2. Beiðni frá Kristjáni Sigurðssyni um launalaust leyfi fyrir skólaárið 2010-2011.
  • 3. Kauptilboð frá hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf. í jörðina Nauteyri við Ísafjarðardjúp.
  • 4. Fundargerð Félagasmálaráðs Strandabyggðar dags. 13. janúar 2010.
  • 5. Umsókn um leyfi til að ráða stuðningsfulltrúa í hálfa stöðu fyrir Grunnskólann á Hólmavík.
  • 6. Fundargerð heilbrigðisnefndar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða dags. 30. október 2009.

 

Þá var gengið til dagskrár.

 

  • 1. Fjárhagsáætlun Strandabyggðar ársins 2010 og þriggja ára áætlun, fyrri umræða. Lögð er fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun ársins 2010 ásamt þriggja ára áætlun 2011-2013. Gert er ráð fyrir hagnaði frá rekstri er nemur tæpum tveimur millj. kr. þegar aðalsjóður og B-hluta sjóðir eru teknir saman í samstæðureikningi en tæpum 10 millj. kr. hagnaði frá rekstri aðalsjóðs og A-hluta sjóðum. Hagrætt verður áfram í rekstri og aðhaldi beitt án þess þó að skerða núverandi þjónustu. Eignfærðar fjárfestingar eru áætlaðar 21.5 millj. kr. en helstu verkefni eru að koma í notkun nýrri borholu fyrir vatnsveitu Hólmavíkur, ljúka við klæðningu og skipta um járn á þaki á Höfðagötu 3, breyta sturtuklefa í Félagsheimilinu á Hólmavík í eldhús og lagfæra húseignina að Skólabraut 18. Útsvarsprósenta og fasteignaprósentur breytast ekki milli ára en gera má þó ráð fyrir hækkunum á fasteignagjöldum þar sem fasteignamat húseigna á Hólmavík hefur hækkað umtalsvert milli ára. Önnur þjónustugjöld hækka að meðaltali um 7% nema tónskólagjöld sem hækkuðu um 10% um áramót og gjöld vegna skólaskjóls og mötuneytis sem hækkuð voru haustið 2009. Tekjur eru áætlaðar tæpar 345 millj. kr. og skiptast þannig að áætlaðar skatttekjur verði rúmar 157 millj. kr., framlag jöfnunarsjóðs tæpar 129 millj. kr. og aðrar tekjur rúmar 58 millj. kr. Rekstrargjöld án afskrifta og fjármagnsliða eru áætluð rúmar 272 millj. kr., fjármagnsgjöld rúmar 51 millj. kr. og afskriftir tæpar 19,5 millj. kr. Samþykkt er samhljóða að vísa fjárhagsáætlun Strandabyggðar ársins 2010 og þriggja ára áætlun til seinni umræðu.
  • 2. Beiðni frá Kristjáni Sigurðssyni um launalaust leyfi fyrir skólaárið 2010-2011. Borist hefur beiðni frá Kristjáni Sigurðssyni dags. 12. janúar 2010 um launalaust leyfi fyrir skólaárið 2010-2011 þar sem hann hefur fengið námsleyfi á launum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til að stunda nám í tónmennt og stjórnun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Samþykkt var samhljóða að verða við erindinu og veita honum launalaust ársleyfi frá störfum.
  • 3. Kauptilboð frá hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf. í jörðina Nauteyri við Ísafjarðardjúp. Borist hefur kauptilboð frá hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf. dags. 13. janúar 2010 í jörðina Nauteyri við Ísafjarðardjúp að fjárhæð 15 millj. kr. og gildir tilboðið til 25. janúar n.k. Samþykkt var að fresta afgreiðslu málsins til að afla gagna með fjórum greiddum atkvæðum en einn vildi hafna tilboðinu.
  • 4. Fundargerð Félagasmálaráðs Strandabyggðar dags. 13. janúar 2010. Lögð er fram til samþykktar fundargerð Félagasmálaráðs Strandabyggðar frá 13. janúar 2010. Fundargerðin er samþykkt samhljóða.
  • 5. Umsókn um leyfi til að ráða stuðningsfulltrúa í hálfa stöðu fyrir Grunnskólann á Hólmavík. Grunnskólinn á Hólmavík sækir um leyfi til að ráða stuðningsfulltrúa í hálfa stöðu frá 1. febrúar 2010 til 31. maí 2010 en starf hans verður í 6. bekk þar sem hann sinnir tveimur nemendum. Samþykkt var samhljóða að veita leyfið.
  • 6. Fundargerð heilbrigðisnefndar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða dags. 30. október 2009. Lögð er fram til kynningar fundargerð heilbrigðisnefndar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða dags. 30. október 2009 ásamt fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2010 til samþykktar. Fjárhagsáætlunin er samþykkt samhljóða án athugasemda.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt.  Fundi slitið kl. 18:05.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón