A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Aukasveitarstjórnarfundur 1317, 30. apríl 2021

Aukasveitarstjórnarfundur 1317 í Strandabyggð

Aukafundur nr. 1317 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn föstudaginn 30. apríl 2021 í Hnyðju, Höfðagötu 3, kl. 16:00.  Eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sátu fundinn: Jón Gísli Jónsson, Ásta Þórisdóttir, Pétur Matthíasson, Guðfinna Lára Hávarðardóttir og Jón Jónsson. Eiríkur Valdimarsson boðar forföll. Guðfinna Lára Hávarðardóttir ritaði fundargerð.

 

Fundardagskrá er svohljóðandi:

 

  1. Starfsmannamál

 

Þá var gengið til dagskrár.  Oddviti setti fundinn kl. 16.00 og bauð fundarmenn velkomna.

 

  1. Starfsmannamál.

 

Oddviti greinir frá að sveitarstjóra, Þorgeiri Pálssyni, hafi verið sagt upp störfum þann 20. apríl síðastliðinn, að höfðu samráði við alla sveitarstjórnarfulltrúa og með samhljóma samþykki þeirra. Fyrir fundinum liggur að staðfesta þessa niðurstöðu formlega. Samþykkt samhljóða.

 

Samhliða ákvörðuninni er prókúra fyrrverandi sveitarstjóra felld niður og oddvita, Jóni Gísla Jónssyni, veitt prókúra fyrir sveitarfélagið Strandabyggð. Samþykkt samhljóða.

 

 

Sveitarstjórn Strandabyggðar leggur fram eftirfarandi bókun:

 

„Fyrrum sveitarstjóra Strandabyggðar, Þorgeiri Pálssyni, var sagt upp störfum þann 20. apríl sl. Þessi ákvörðun var ekki léttvæg en var tekin að vel ígrunduðu máli og átti sér nokkurn aðdraganda. Samstarfsörðugleikar höfðu farið vaxandi eftir því sem leið á kjörtímabilið og samskipti milli sveitarstjóra og kjörinna fulltrúa voru oft erfið og þung. Slíkar aðstæður eru krefjandi fyrir alla aðila og leiða oft í ljós að þeir eiga ekki lengur samleið. Þegar sýn og stefna sveitarstjórnar og sveitarstjóra fara ekki saman fer dýrmætur tími til spillis. Þessir þættir leiddu til þess að sveitarstjórn Strandabyggðar var sammála um að segja sveitarstjóra upp störfum.

 

Sveitarstjórn telur að löglega hafi verið staðið að uppsögninni. Farið var eftir ákvæðum ráðningarsamnings. Þar er kveðið á um þriggja mánaða gagnkvæman uppsagnarfrest sem sveitarfélagið greiðir, hvort sem um uppsögn af hálfu sveitarfélags eða sveitarstjóra er að ræða.

 

Sveitarstjórn hafnar því alfarið að hafa brotið sveitarstjórnarlög, samþykktir og siðareglur Strandabyggðar eins og ýjað er að í yfirlýsingu frá fyrrum sveitarstjóra.

 

 

Oddviti Strandabyggðar tekur tímabundið við sem framkvæmdastjóri í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn Strandabyggðar mun í framhaldinu skipta með sér verkum og vinna að þeim í samvinnu við skrifstofu sveitarfélagsins og með öðru starfsfólki Strandabyggðar til að minnsta kosti þriggja mánaða.

 

Sveitarstjórn hefur einnig samið við ráðgjafafyrirtækið Ráðrík um að vera til staðar og taka að sér afmörkuð verkefni fyrir sveitarfélagið gerist þess þörf.“

 

 

Fundargerð lesin yfir og ekki fleira tekið fyrir. Fundi slitið kl. 16.23.

 

Ásta Þórisdóttir

Pétur Matthíasson

Guðfinna Lára Hávarðardóttir

Jón Gísli Jónsson

Jón Jónsson

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón