A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinnumálanefnd - 2. des. 2009

Fundur haldinn í atvinnumálanefnd Strandabyggðar miðvikudaginn 2. desember 2009 kl. 17:00 á skrifstofu Strandabyggðar.  Þorsteinn Newton formaður setti fundinn og stjórnaði honum en aðrir fundarmenn Þorsteinn Sigfússon, Eysteinn Gunarsson og Valdimar Guðmundsson (varamaður). Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð og Viktoría Rán Ólafsdóttir og Þorgeir Pálsson frá Atvest.  Eftirfarandi dagskrá lá fyrir fundinum:

 

  1. Yfirfara hvort tillögur sem snéru að hlutverki nefndarinnar hafi verið samþykktar innan sveitarstjórnar.
  2. Fara yfir hvernig mönnum fannst sumarið 2009 hafa komið út, hvað varðar ferðaþjónustu.
  3. Ákveða næsta þema (síðast var það ferðaþjónusta).
  4. Arnkötludalur - tækifæri.
  5. Önnur mál (stefnumót á Ströndum).

 

Þá var gengið til dagskrár.

 

  1. Yfirfara hvort tillögur sem snéru að hlutverki nefndarinnar hafi verið samþykktar innan sveitarstjórnar.  Tillögurnar voru samþykktar samhljóða af sveitarstjórn.
  2. Fara yfir hvernig mönnum fannst sumarið 2009 hafa komið út, hvað varðar ferðaþjónustu.  Fjallað var um fund sem haldinn var á Café Riis með aðilum í ferðaþjónustu í Strandabyggð og rætt um viðbrögð þeirra við fundinum.  Þá var fjallað um útkomu sumarsins en talsverð aukning var á ferðamönnum til Vestfjarða en enn vantar tölur frá Hagstofunni þess efnis.  Þá var rætt um hvort svæði eða lóðir undir ferðatengda þjónustu sé til staðar og hvort ekki slíkt sé nauðsynlegt fyrir nýja aðila.  Vill meirihluti nefndarinnar láta bóka nauðsyn þess að svæðið milli Höfðagötu og Fiskislóðar verði skilgreint undir verslun og þjónustu en ekki hafnsækna starfsemi.  Þá mun Viktoría koma með endanlegar tölur um gistinætur sumarið 2009 á næsta fundi.
  3. Ákveða næsta þema (síðast var það ferðaþjónusta).  Samþykkt var að fela Atvinnuþróunarfélaginu að undirbúa verklýsingu og kostnaðaráætlun vegna þarfagreiningu fyrir þjónustu á Hólmavík enda mikil tækifæri sem ekki er verið að nýta í dag.   
  4. Arnkötludalur - tækifæri.  Vísað til næsta fundar enda fellur sá liður vel undir þarfagreiningu fyrir þjónustu.
  5. Önnur mál.  Rætt var um hversu vel heppnuð sýningin Stefnumót á Ströndum var og lýsir nefndin ánægju með að hún verði sett upp aftur í byrjun sumars.

 

 Fleira var ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 19:15.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón