A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinnu- dreifbýlis- og hafnarnefnd - 15. ágúst 2017

Fundur var haldinn í Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd Strandabyggðar þriðjudaginn 17. ágúst 2017, kl. 16:00, á skrifstofu sveitarstjóra, annarri hæð, Höfðagötu 3 á Hólmavík.

Til fundarins voru boðaðir fulltrúar ADH nefndar: Haraldur V. A. Jónsson, Jóhann L. Jónsson, Sverrir Guðmundsson, Bryndís Sveinsdóttir  og Guðrún E. Þorvaldsdóttir.

Fundardagskrá er svohljóðandi:

 

  1. Fjallskilaseðill 2017
    Fulltrúar ADH fara yfir drög að fjallskilaseðli og gera athugasemdir. Sveitarstjóra er falið að ganga frá fjallskilaseðli fyrir árið 2017.
  2. Vegagerðin: Fjögurra ára samgönguáætlun 2018 – 2022, verkefni
    Fulltrúar ADH fara yfir verkefnin og fela sveitarstjóra að skila verkefnalista til Vegagerðarinna.
  3. Önnur mál
    Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd lýsir þungum áhyggjum vegna erfiðleika hjá sauðfjárbændum. Sauðfjárbúskapur er næst stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu. Ef framfer sem horfir mun afkoma fjölda íbúa í Strandabyggð versna um 40-50% á tveimur árum. Ekkert samfélag þolir það án þess að skaðast efnahags- og félagslega. Þau sveitarfélög þar sem sauðfjárbúskapur er aðalatvinnugreinin munu verða verst úti.
    Atvinnu-, dreifbýlis og hafnarnefnd Strandabyggðar tekur heils hugar undir yfirlýsingu landssamtaka sauðfjárbænda frá 11. ágúst og treystir því að stjórnvöld muni grípa til allra mögulegra aðgerða til hjálpar sauðfjárbændum, afurðastöðvum og sveitarfélögum til að komast yfir þá tímabundnu erfiðleika sem nú blasa við. Að gera ekkert í þeirri stöðu sem nú er uppi væri ótrúlegt skeytingarleysi og fyrirlitning gagnvart byggðum landsins.

    Ekki eru fleiri mál á dagskrá.

 

 

 

Fundi slitið kl. 16:57

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón