Fara í efni

Skipulag og framkvæmdir

Skipulag sveitarfélags snýst um hvernig byggð og umhverfi er skipulagt. Það segir til um hvernig land er notað, svo sem fyrir íbúðabyggð eða verslanir. Einnig um hvernig götur og lóðir skulu vera og reglur um hönnun bygginga, eins og hæð og fjölda íbúða. 

Þrjár gerðir af skipulagsáætlunum eru unnar á sveitarstjórnarstigi: 

Svæðisskipulag er samræmd stefna tveggja eða fleiri sveitarfélaga um byggðaþróun og þá þætti landnotkunar sem talin er þörf á að samræma vegna sameiginlegra hagsmuna sveitarfélaganna. Strandabyggð er hluti af svæðisskipulagi Vestfjarða líkt og öll aðildarsveitarfélög Fjórðungssambands Vestfirðinga. Svæðisskipulagið er unnið á vettvangi Fjórðungssambands Vestfirðinga.

Aðalskipulag er stefna sveitarfélagsins um landnotkun, náttúruvernd og fyrirkomulag og þróun byggðar í öllu sveitarfélaginu. 

Deiliskipulag er skipulag fyirr afmarkað svæði innan sveitarfélagsins, til dæmis hverfi, hverfishluta, götureiti eða óbyggð svæði. 

Aðal- og deiliskipulagsmál eru í umsjón umhverfis- og skipulagsnefndar Strandabyggðar.