Fara í efni

Gjaldskrár

Ýmis gjöld og útleiga eigna

Útsvar 

Sveitarstjórn samþykkir að útsvarshlutfall árið 2026 verði jafnt lögbundnu hámarki sbr. Lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 eins og þau eru á hverjum tíma. 

Við gerð samþykktar þessarar er gert ráð fyrir að hámarkshlutfallið verði áfram 14,97% á árinu 2026. 

Fasteignaskattur 

  1. 0,625% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Um er að ræða hámarks álagningu. 

  2. 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr.laga nr. 4/1995. 

  3. 1,65% af álagningarstofni allra annara fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr.laga nr. 4/1995 

Lóðarleiga 

  1. Íbúðarhúsnæði 2,5% af fasteignamati lóðar 

  2. Atvinnuhúsnæði 2,5% af fasteignamati lóðar 

Afsláttur af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja sbr. 4. mgr. 5 gr. laga nr. 4/1995 og reglum Strandabyggðar: 

Elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Strandabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti sem lagt er á íbúðarhúsnæði og í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu og hafi ekki af því leigutekjur. 

Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega getur þó að hámarki 84.050 kr. árið 2025. Afslátturinn er tekjutengdur. Þessar fjárhæðir miðast við árstekjur (heildartekjur) skv. skattframtali næstliðins árs og gilda fyrir lækkun fasteignaskatts á álagningarári. 

Við ákvörðun afsláttar skulu notaðar eftirfarandi viðmiðanir: 

Innheimta: 

Álagning fasteignagjalda byggir á gildandi fasteignamati allra fasteigna eins og það er í janúar ár hvert. Álagning fasteignagjalda fer fram á vegum skrifstofu Strandabyggðar sem einnig hefur umsjón með leiðréttingum, reikningagerð og innheimtu.  

Álagningarseðill og reikningar vegna fasteignagjalda verða birtir á www.island.is á kennitölu eiganda. Greiðslukröfur verða birtar í heimabönkum líkt og undanfarin ár. Gjalddagar eru 9 talsins og er fyrsti gjalddaginn 1. febrúar en sá síðasti þann 1. október. Ef heildargjöld greiðanda eru undir kr. 40.000 er einungis 1 gjalddagi 1. apríl. Á hverjum greiðsluseðli verður greiðsla á aðeins einum gjalddaga, þannig að eldri seðlar halda gildi sínu. Hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga, greiðast dráttarvextir frá gjalddaga. Ekki eru sendar út kröfur vegna innheimtu undir 1000 kr. Fasteignaeigendur með gjöld undir þeim upphæðum eru beðin um að millifæra á bankareikning Strandabyggðar 1161-26-1 og senda bankakvittun á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is

Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 451-3510 eða á netfanginu strandabyggd@strandabyggd.is  

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 14. október 2025. 

Gildir frá 1. janúar 2026 

Þjónusta Verð

Ljósritun/prentun A3

73

Ljósritun/prentun A3 báðu megin

130

Ljósritun/prentun í lit A3

165

Ljósritun/prentun í lit A3 b.m

250

Ljósritun/prentun A4

42

Ljósritun/prentun A4 báðu megin

52

Ljósritun/prentun A4 í lit

78

Ljósritun/prentun A4 í lit báðu megin

130

Ljósritun/prentun A5

21

Ljósritun/prentun A5 báðu megin

26

Ljósritun/prentun A5 lit

36

Ljósritun/prentun A5 lit báðu megin

62

Árgjald

5.615

Leiga á fundarherbergi í Hnyðju pr. klst

920

Leiga á sal í Hnyðju pr. klst.

6.995

Leiga á Hnyðju í einn dag

42.360

Leiga f. markað eða álíka þjónustu

26.000

Leiga á skrifstofuaðstöðu m. borði og stól pr. sólarhring

1.680

Leiga á skrifstofuaðstöðu mánaðarleiga gr. pr. m2

2.540

Leiguverð hækkar mánaðarlega skv. byggingarvísitölu

Leiga á Flugstöð pr. klst.

6.990

Leiga á Flugstöð í einn dag

42.360

Íbúðir Verð

Miðtún 17, 71 m2

123.680

Lækjartún 16, 61,5 m2

99.985

Lækjartún 18, 87,8 m2

142.740

Lækjartún 20, 61,5 m2

99.985

Leiguverð hækkar mánaðarlega skv. byggingarvísitölu

Anddyri v. minni fundar eða markaðs

25.720

Salur tímaleiga 1 klst

6.995

Salur f. markað eða álíka þjónustu með eldhúsaðstöðu

44.055

Húsið v. minni veislu <100, fermingar eða erfidrykkju allt að 1,5 sólarhringur

52.177

Húsið v. stærri veislu >100, brúðkaup eða afmæli allt að 2 sólarhringir

78.185

Húsið v. þorrablóts eða góufagnaðar verð á hvern seldan miða

415

Húsið v. ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 2 dagar

176.200

Húsið v. dansleiks, ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 1 dagur

102.845

Leiga á eldhúsi v. matvælaframleiðslu pr. klst fyrstu 50 tímar

775

Pr. klst yfir 50 tíma

1.540

Uppstilling í sal og samantekt pr. klst

9.540

Leiksýningar eða minni tónleikar

26.880

Leiksýningar eða tónleikar fleiri en 100 manns

52.100

Húsið allt v. fjáröflunarviðburða skóla eða félaga í heimabyggð

0

Svefnpokapláss f. skólahópa, íþróttafélög og þ.h. pr. mann - Ath. ekki dýnur

840

Dúkaleiga

360

Leiga á borðbúnaði úr húsi: staup, diskar og kaffibollar pr. stk.

25

Leiga á borðbúnaði úr húsi: hnífar, gafflar, skeiðar, teskeiðar pr. stk.

9

Vatnskönnur pr. stk.

31

Kaffivél

1.675

Kaffikönnur pr. stk.

420

Borð pr. stk.

1.675

Stólar pr. stk.

420

Skjávarpi pr. sólarhring

10.805

Hljóðkerfi pr. sólarhring

15.600-62.400

Leiga á húsi v. ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 2 dagar - Staðfestingargjald til greiðslu innan 3ja mánaða kr. 40.000

Leiga á húsi v. dansleiks, ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 1 dagur - Staðfestingargjald til greiðslu innan 3ja mánaðar kr. 23.000

Íþróttamiðstöð Strandabyggðar

Þjónusta Verð

Gestir 14 ára og eldri

1.945

Öryrkjar og ellilífeyrisþegar

1.180

Tenging við rafmagn

1.615

Afnot af þvottavél

1.030

Afnot af þurrkara

1.030

Sturta

520

Tjaldsvæðagjöld eru greidd í Íþróttamiðstöð. Ef dvalið er lengur en 3 nætur í einu þá er 4. hver nótt frí. Afnot af sturtum eru í íþróttamiðstöðinni og greiðist samkvæmt gjaldskrá. Á hverja gistinótt bætist við gistináttaskattur á hverja gistieiningu eins og hann er hverju sinni. 

Service Price in ISK

Guests 14 years and older

1.945

Connection for electricity

1.615

Use of washing machine

1.030

Use of dryer

1.030

Shower

520

Payment for the campsite is due inside the Sportscenter. If staying for a longer period of time, your fourth night will be free of charge. 

Fullorðnir Verð Börn Verð

Stakur tími

1.325

Stakur tími

495

10 tíma kort

7.935

10 tíma kort

2.760

30 tíma kort

19.870

30 tíma kort

6.950

Árskort

53.000

Árskort

18.675

Annað Verð

Afmælisveislur

665 pr. barn

Leiga á handklæði/sundfötum

785

Kaffi

390

Börn í afmæli þurfa að vera í umsjón fullorðins einstaklings sem greiðir líka fyrir sig í salinn

Fullorðnir Verð Börn 13-17 ára, örorku- og ellilífeyrisþegar Verð

Stakur tími

1.450

Stakur tími

500

10 tíma kort

10.070

10 tíma kort

3.515

30 tíma kort

27.370

30 tíma kort

9.580

Árskort

53.000

Árskort

18.675

Allur íþróttasalurinn tímagjald

8.710

Börn 6-12 ára í sal í leik

495

Allur íþróttasalurinn einn dagur

34.835

Afmælisveislur kr. per barn

665

Börn yngri en 10 ára 1. júní þurfa að vera í umsjón einstaklings 15 ára eða eldri sem greiðir fyrir sig í salinn.

Börn í afmælisveislu þurfa að vera í umsjón fullorðins einstaklings sem greiðir líka fyrir sig í salinn.

Fullorðnir - samsettur tími þrek og sund Verð Börn, örorku- og ellilífeyrisþegar Verð

Stakur tími

2.070

Stakur tími

840

10 tímar

17.340

10 tíma

5.590

30 tímar

33.500

30 tímar

11.185

Árskort

68.890

Árskort

24.275

Sameinaður Grunn-, tón- og leikskóli

Þjónusta Verð

Tónskólagjald eldri en 18 ára - ein önn

98.440

Tónskólagjald eldri en 18 ára - 1/2 önn eða hálft nám

49.220

Tónskólagjald 1 önn

49.220

Tónskólagjald hljóðfæri nr. 2 hálft nám

73.805

Systkinaafsláttur í Tónskóla (ath. 1/2 önn) - 2. barn 25% afsláttur

-6.155

Systkinaafsláttur í Tónskóla (ath. 1/2 önn) - 3. barn 50% afsláttur

-13.490

Systkinaafsláttur í Tónskóla (ath. 1/2 önn) - 4. barn 75% afsláttur

-18.480

Hóptími pr. nemandi

15.100

Hljóðfæraleiga pr. önn

8.000

Bækur og námsgögn eru seld á kostnaðarverði.

Þjónusta Verð

4 tíma vistun á mánuði

17.360

5 tíma vistun á mánuði

21.345

6 tíma vistun á mánuði

25.631

7 tíma vistun á mánuði

29.895

8 tíma vistun á mánuði

34.175

15 mínútna morgungjald

1.080

15 mínútna síðdegisgjald

1.080

Morgunmatur

2.030

Hádegismatur

9.285

Síðdegishressing

2.030

Systkinaafsláttur 50% af vistun hvers barns umfram eitt.

Afsláttur einstæðra foreldra 50%

Breytingar á vistun þurfa að tilkynnast fyrir 1. hvers mánaðar eða 15. hvers mánaðar.

Ef barn fer í veikindaleyfi eða annað leyfi í a.m.k. 5 daga getur foreldri óskað eftir niðurfellingu fæðisgjalds og verður það leiðrétt í næstu innheimtu. 

Þjónusta Verð

Mötuneyti námsmanna úr öðru sveitarfélagi

1.245

Frístun daggjald - nestistími innifalinn

1.065

Frístund - systkinaafsláttur 25%

-265

Frístun - 50% afsláttur einstæðra foreldra

-530

Áhaldahús

Þjónusta Verð

Starfsmaður áhaldahúss í dagvinnu

6.880

Starfsmaður áhaldahúss í yfirvinnu

10.380

Sláttur utan Hólmavíkur

23.935

Akstur utanbæjar

151 kr/km

Í útseldri vinnu við slátt er talinn tími starfsmanns við sláttinn, leiga á sláttutæki og akstur. Hægt er að panta slátt í dreifbýli Strandabyggðar og er akstur þá innheimtur að auki en reynt verður að samnýta ferð. Ósk um slátt er send á ahaldahus@strandabyggd.is eða í síma 865-4806.

Byggingar- og skipulagsgjöld

1. gr. 

Almenn ákvæði

1.1 Við útgáfu byggingarleyfis/heimildar, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingafulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.

1.2 Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.

2. gr. 

Byggingarleyfis-/-heimildargjöld

Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. Fyrir byggingarleyfi skv.9.gr.,sbr. 51.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, skal greiða gjöld sem hér segir:

2.1

Íbúðarhúsnæði Verð

Einbýlishús

228.938

Parhús, tvíbýlishús eða raðhús á einni hæð, verð pr. íbúð

192.792

Raðhús á fleiri en einni hæð eða fjölbýlishús með þremur íbúðum, pr. íbúð

164.180

Fjölbýlishús, tvær hæðir, með fjórum íbúðum eða fleiri, pr. íbúð

139.157

Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri, með fjórum íbúðum eða fleiri, pr. íbúð

117.913

2.2

Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir Verð

Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur allt að 500 m2

228.938

Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur stærri en 500 m2

309.067

2.3

Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar Verð

Frístundahús stærri en 50 m2

228.938

Frístundahús 25-50 m2

114.469

Frístundahús 15-25 m2

57.234

Smáhýsi frá 1-15 m2 (aukahús við frístunda- og íbúðarhús)

17.213

Sólstofur, bílageymslur, geymslur og viðbyggingar að 20 m2

57.234

Sólstofur, bílageymslur, geymslur og viðbyggingar að 20-100 m2

114.469

Viðbyggingar stærri en 100 m2

Sömu gjöld og nýbyggingar

Vélageymslur/korngeymslur allt að 300 m2

129.205

Fjárhús, fjós og hesthús eða sambærileg hús allt að 300 m2

129.205

Fjárhús, fjós og hesthús eða sambærileg hús ef stærra en 300 m2

Sömu gjöld og atvinnuhúsnæði

Gróðurhús allt að 300 m2

129.205

Gróðurhús ef stærri en 300 m2

Sömu gjöld og atvinnuhúsnæði

Gjald v. húsa s.s. sumarhúsa sem flutt eru inn á svæði Strandabyggðar fullbúin og sett á undirstöður

114.469

3. gr.

Þjónustugjöld

3.1 Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir: 

3.1.1

Afgreiðslugjald

29.894

3.1.2

Endurskoðun aðaluppdráttar

19.710

3.1.3

Breytt notkun á mannvirkjum að 60 m2

77.460

3.1.3

Breytt notkun á mannvirkjum yfir 60 m2

77.460

3.1.4

Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla

50.779

3.1.5

Úttekt v. meistaraskipta eða byggingastjóraskipta

50.779

3.1.6

Úttekt v. rekstrarleyfis

50.779

3.1.7

Húsaleiguúttektir á íbúðar- eða atvinnuhúsnæði

50.779

3.1.8

Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga 1-5 fastanúmer í húsi

50.779

3.1.9

Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fnr.>5

6.539

3.1.10

Tímabundin stöðuleyfi

30.984

3.1.11

Staðfestingargjald v. lóðaúthlutunar, óendurkræft

39.762

3.1.12

Breyting og gerð á nýjum lóðarsamningi

56.459

3.1.13

Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs

30.984

3.1.14

Aukaúttekt

17.902

3.1.15

Aukamæling á útsetningu húss

87.788

3.1.16

GPS mæling/lóðauppdráttur (4-6 punktar)

77.460

3.1.17

Stofnun lóðar

50.779

3.1.18

Niðurrif mannvirkja

15.664

Útprentun á gögnum, teikningum eða öðrum tilheyrandi skjölum fer eftir gjaldskrá skrifstofu Strandabyggðar. Þinglýsingarkostnaður vegna stofnskjala og lóðarleigusamninga bætist við innheimtu ef um slíkt er að ræða.

4. gr. 

Framkvæmdaleyfisgjald og gjald fyrir skipulagsvinnu

4.1 Fyrir framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir: Að meginreglu skal sá sem óskar eftir nýju deiliskipulagi eða breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi greiða þann kostnað sem verkið hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.

4.2 Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skiplagsvinna á vegum er yfirstandandi eða fyrirhugðu á svæðinu eða skiplagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

4.3 Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skiplags- og byggingarfulltrúa sem er 18.061 kr./klst. eða gjald skv. reikningi.

Kostnaður vegna skipulagsvinnu:

4.4 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:

Afgreiðslugjald, greitt við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi eða skipulagsbreytingu

29.894

Breyting á aðalskiplagsuppdrætti, sbr. 36.gr. skipulagslaga,krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr.klst.

18.061

Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1.mgr. 36. gr.

464.761

Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr., 2.mgr.36. gr.

310.938

4.5

Kostnaður vegna nýs deiliskiplags:

Afgreiðslugjald

29.894

Nýtt deiliskipulag, sbr. 38.gr. skipulagslaga,krafið skv. útl.kostnaði, viðmiðunargjald pr. klst.

18.061

Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr, 2.mgr.38. gr.

206.561

4.6

Kostnaður vegna verulegra breytinga á deiliskipulagi:

Breyting á deiliskipulagsuppdr., sbr. 1.mgr. 43.gr. krafið skv. útl.kostnaði, viðmiðunargjald pr.klst.

18.061

Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 1.mgr. 43.gr.

206.561

4.7

Kostnaður vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi:

Breyting á deiliskipulagsuppdrætti. sbr. 1.mgr. 43.gr.,krafið skv. útl.kostn. viðmiðunargjald pr.klst.

18.061

Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 1.mgr. 43.gr.

68.840

4.8

Kostnaður vegna grenndarkynningar:

Grenndarkynning

68.840

Grenndarkynning, minniháttar

30.124

Kostnaður vegna framkvæmdaleyfa

4.9 Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.

4.10 Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.

4.11 Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.

4.12 Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins vegna þeirrar vinnu hluti af útlögðum kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfisins.

4.13 Fyrir framkvæmdaleyfi skal greiða gjöld sem hér segir:

Afgreiðslugjald

28.894

Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka um mat á umhverfisáhrifum nr. 111/2021, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr.klst.

124.560

Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald, pr. klst.

55.533

Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi

18.061

Umsýsla og yfirferð gagna

21.811

Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar

29.894

Áfangaúttekt

56.243

5. gr. 

Gjalddagi, lögveð

5.1 Gjalddagi afgreiðslugjalda er við afgreiðslu umsókna. 

5.2 Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis. 

5.3 Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis. 

5.4 Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingareyfi falli úr gildi eða umsókn sé dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis. 

5.5 Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi.

6. gr. 

Verðlagsbreytingar

Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í október 2025 sem er 125,8 stig, grunnur 2022 og breytist 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni.

7. gr. 

Gildistaka

7.1 Gjaldskrá þessi sem er samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar þann 9. desember 2025 er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur á brott gjaldskrá nr. 1184/2024 fyrir byggingarleyfis-/heimildar-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Strandabyggð.

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 225

Strandabyggð, 17. desember 2025

Þorgeir Pálsson, oddviti.

B deild - Útgáfudagur: 7. janúar 2026

GJALDSKRÁ fyrir byggingarleyfis-/heimildar-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Strandabyggð. | Stjórnartíðindi

Gæludýraleyfi

Skráningargjald Verð

Nýskráning hunds

16.020

Nýskráning kattar

10.080

Aukagjald fyrir týnt merki

2000

Afsláttur upphæð 8.000,- er af skráningargjaldi ef eigandi hefur sótt viðurkennt hundaþjálfunarnámskeið.

Innifalið í skráningargjaldi er merki, árleg skoðun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélags. Ekki er innheimt eftirlitsgjald á skráningarári.

Árlegt eftirlitsgjald Verð

Hundagjald

11.760

Kattagjald

7.285

Innifalið í leyfisgjaldi er árleg skoðun og ormahreinsun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélags. 

Föngun Verð

Fyrsta föngun hunds

16.240

Önnur og þriðja föngun hunds

32.945

Föngun hunds án leyfis

38.490

Handsömun kattar

7.280

Óheimilt er að afhenda dýr án leyfis nema gengið verði frá leyfisveitingu við afhendingu. 

Innifalið í föngunargjaldi er fæði og uppihald handsamaðs dýrs og umsýslugjald.

Birting í B-deild Stjórnartíðinda 8. janúar 2026: GJALDSKRÁ fyrir gæludýraleyfi í Strandabyggð | Stjórnartíðindi

Gámasvæði í Réttarvík og geymslusvæði við Hnitbjörg

1. gr. 

Gjaldskrá þessi og reglur eru fyrir skipulagt gámasvæði í Réttarvík og geymslusvæði við
Hnitbjörg í Strandabyggð.

2. gr. 

Sótt skal um leigupláss á þar til gerðum eyðublöðum. Fram komi nafn, heimilisfang,
símanúmer og kennitala umsækjanda. Tilgreina skal áætlaðan leigutíma og tegund
geymslumuna. Umsóknarblað skal undirritað af umsækjanda. Umsóknum ber að skila á
skrifstofu Strandabyggðar og afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Starfsmaður
Áhaldahúss sér um úthlutun geymslusvæðis og skal leigutaki undirrita leigusamning um
leið. Leigutaka er óheimilt að endurleigja úthlutuðu plássi til annarra.

3. gr. 

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 3 mánuðir miðað við 1. dag hvers mánaðar. Leigugjald er
innheimt í nóvember ár hvert og hlutfallslega miðað við leigutíma. Leigutími getur aldrei
verið styttri en einn mánuður. Hafi hlutir ekki verið sóttir innan tveggja mánaða eftir að
umsömdum leigutíma lýkur eða greiðslufall orðið, áskilur leigusali sér allan rétt til að selja
viðkomandi hluti fyrir áföllnum kostnaði.

4. gr. 

Leiga á geymslusvæði v. Hnitbjörg eru á hvern reit pr. ár

19.485

Leiga á gámasvæði pr. ár. v. 20 ft. gáms

17.400

Leiga á gámasvæði pr. ár. v. 40 ft. gáms

34.800

5. gr. 

Svæðið er ekki vaktað og hlutir á gáma- og geymslusvæði alfarið á ábyrgð eigenda. Ekki er
aðgangur að vatni né rafmagni.

6. gr.

Leigutaki ber einn ábyrgð á þeim munum sem hann geymir á svæðinu. Gámar á
geymslusvæði skulu vera snyrtilegir og leigutaka skylt að ganga snyrtilega um svæðið. Hlutir
sem geymdir eru á svæðinu mega ekki innihalda mengandi efni sem hætta er á að berist um
svæðið og umhverfi þess. Leigutaki þarf að ganga þannig frá eigum sínum að ekki stafi
slysa- eða fokhætta af þeim. Óheimilt er að geyma hluti ofan á eða til hliðar við gáma á
gámasvæði og utan reita á geymslusvæði. Leigutaki skal gæta þess að valda ekki öðrum
leigutökum ónæði eða óþægindum t.d með því að hefta aðgang.

7. gr.

Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Séu gjöldin
ekki greidd á eindaga reiknast dráttarvextir af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. um vexti og
verðtryggingar nr. 38/2001.

8. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025 og er bundin byggingarvísitölu grunni frá október 2025 sem er 125.8 stig og uppreiknast árlega skv. henni. Reglur og leigufjárhæð getur breyst í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Strandabyggðar

I. Kafli

Almennt

1. gr. 

Verkefni Slökkviliðs Strandabyggðar, ákvarðast annars vegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hins vegar af ákvæðum í stofnsamningi Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs. Af öðrum verkefnum skulu Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda taka gjald samkvæmt gjaldskrá þessari. 

2. gr. 

Slökkvilið Strandabyggðar og Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda bs. innheimta ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

3. gr. 

Slökkviliðsstjóra er heimilt að veita afslátt eða fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum s.s. vegna vatnsflutninga og/eða fellur að markmiðum Slökkviliðs Strandabyggðar. Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningarskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. 

II. Kafli

Lögbundin verkefni

4. gr. 

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 3. mgr. 12. gr. sömu laga.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns slökkviliðs er 13.692 kr.

5. gr. 

Öryggisvaktir á mannvirki

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkomandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimt er að lágmarki 83.452 kr. fyrir hvern starfsmann Slökkviliðs Strandabyggðar sem sinnir verkefninu, auk 20.860 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

6. gr. 

Lokun mannvirkis

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru 20.860 kr fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 83.452 kr. auk 20.860 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.

7. gr. 

Dagsektir

Innheimta skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 20.860 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

8. gr. 

Öryggis- og lokaúttektir

Innheimtar eru fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttekta, að lágmarki 41.725 kr. Fyrir stærri úttektir skal að auki innheimta 20.860 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

9. gr. 

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald 20.860 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 83.452 kr. auk 20.860 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

10. gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimta fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.

Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 20.860 kr. fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunaviðvörunum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 9. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

11. gr. 

Umsagnir opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi

Af umsögnum til annarra opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi skal tekið fast gjald vegna þriggja klukkustunda vinnu, 62.580 kr., ef skoða þarf viðkomandi stað, en einnar klukkustundar, 20.860 kr., ef umsögn er afgreidd án skoðunar á staðnum.

III Kafli

Önnur verkefni og þjónusta

12. gr. 

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa sveitarfélagsins, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 20.860 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 16.583 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 147.887 kr.

Viðbúnaður vegna elsvoða og mengunaróhappa

13. gr. 

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri.

Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla hins vegar ekki undir lögin né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Slökkviliðsstjóri metur það hverju sinni hvort sinna skuli beiðnum um verkefni sem liggja fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 147.887 kr. auk 16.583 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Viðbúnaður vegna upphreinsunar

14. gr.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 147.887 kr. auk 16.583 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka

15. gr. 

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 147.887 kr. auk 16.583 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Ráðgjafarþjónusta

16. gr.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningarskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinna er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 17.544 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Tækjaleiga

17. gr. 

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem ekki er hægt að leigja hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu eða vatnssugur, slökkvibíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhvers atburðar sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki Slökkviliðs Strandabyggðar skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 73.944 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 16.583 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma auk tækjaleigu.

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga

18. gr. 

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi þar sem lögreglustjóri gefur ekki heimild til flutninga nema í fylgd slökkviliðs. Innheimtar eru að lágmarki 73.944 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 16.583. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma. 

Annað

19. gr. 

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við stofnsamning Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 73.944 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 16.583 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

IV. Kafli

Innheimta

20. gr. 

Fyrir hönd Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs mun skrifstofa Dalabyggðar annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi.

Fyrir hönd slökkviliðs Strandabyggðar mun skrifstofa Strandabyggðar annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi.

Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. til og með 10. gr. fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.

Gildistaka, endurskoðunarákvæði og lagastoð

21. gr. 

Gjaldskrá þessi er samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025 með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Verð í gjaldskrá þessari fylgir vísitölu neysluverðs 1. nóvember ár hvert. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Birting í B-deild Stjórnartíðinda 8. janúar 2026: GJALDSKRÁ Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Strandabyggðar. | Stjórnartíðindi

Hafnarsjóður

I. Kafli

Almennt

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði 1. Miðað er við að hafnarsjóður geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga þ.m.t. fjármagnskostnaði, afskriftum og rekstri. Gjaldskráin tekur breytingum skv. ákvörðun sveitarstjórnar hverju sinni. Virðisaukaskattur 24% leggst á öll gjöld við útgáfu reikninga.

II. Kafli

Um gjaldtöku tengda stærð skipa

2. gr. 

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu (bt) skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969. Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

III. Kafli

Skipagjöld

3. gr.

Lestargjöld: Af öllum skipum skal greiða lestargjald, 22 kr. á mælieiningu (1 mælieining = bt) skv. 2. gr., en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld: Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 12 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Fiskiskip greiða þetta gjald eigi oftar en 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, 160 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 18.150 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 bt greiði þó aldrei lægra en 11.845 kr. á mánuði.

Farþegabátar, hvalaskoðunar- og sjóstangaveiðibátar yfir 20 tonn greiði tvöfalt viðlegugjald. Þau skip og bátar sem ekki greiða aflagjald í 6 mánuði samfellt greiði tvöfalt viðlegugjald. Skútur og skemmtibátar sem koma til hafnar greiði 15.500 kr. fyrir hverja byrjaða viku.

Skip sem ekki er í rekstri né leggur upp afla hjá Hólmavíkurhöfn, skal greiða fullt bryggjugjald fyrir hvern legudag og nýtur ekki afsláttarkjara í formi viðlegugjalds. Skip sem legið hefur óhreyft lengur en 6 mánuði í höfn telst ekki lengur í rekstri.

Undanþegin eru varðskip og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.

Vatnsgjald fyrir báta undir 30 bt er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.

Lestar- og bryggjugjöld eru innifalin í viðlegugjaldi, sjá 14. gr.

IV. Kafli

Vörugjöld

4. gr. 

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

5. gr. 
Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:

  1. Umbúðir sem endursendar eru
  2. Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar
  3. Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna
  4. Úrgangur sem fluttur er til eyðingar

6. gr. 

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu ósundurliðaðar fleiri en ein vörutegund í sendingu skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

V. Kafli

Vörugjaldskrá

7. gr. 

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar 
segir:

1. fl.     Gjald kr. 458 fyrir hvert tonn:

Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og 
úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2. fl.     Gjald kr. 832 fyrir hvert tonn:

Lýsi og fiskimjöl.

3. fl.     Gjald kr. 920 fyrir hvert tonn:

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, 
sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráfefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og 
niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

4. fl.     Gjald kr. 1.186 fyrir hvert tonn:

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu og brottflutnings.

5. fl.     Aflagjald reiknast 1,89% af heildarverðmæti

Kaupanda afla ber að afhenda skrifstofu Strandabyggðar skýrslu um keyptan afla um leið og 
sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og 
afla er landað. Kaupandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds. Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er kr. 
7.625 fyrir hvert tonn.

Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 415

Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt.

Af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast aflagjald af helmingi heildarverðmætis. 

Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu 
heildarverði.

VI. Kafli

Sorphirða

8. gr.

Eftirfarandi gildir fyrir skip og báta sem hafa fasta viðveru og borga mánaðargjald:

  • Frístundabátar kr. 553 á mánuði
  • Bátar að 20 brt. kr. 2.352 á mánuði
  • Bátar 21-30 brt. kr. 3.463 á mánuði
  • Bátar yfir 30 brt. kr. 7.029 á mánuði
  • Móttaka á sorpi, ein ferð á flokkunarstöð kr. 15.356
  • Að auki reiknast kostnaður vegna gjaldskrár Sorpsamlags Strandasýslu sem getur verið 
    breytilegur.

NB: Tekið er lágmarksgjald hvort sem skilað er inn úrgangi eða ekki. Forsvarsmenn útgerða eru því 
hvattir til að safna saman úrgangi og skila inn við komu í höfn. Förgunargjaldið skal standa undir 
kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.

Gjöld vegna skipa sem hafa ekki fasta viðveru, skulu greiða fyrir sorp skv gjaldskrá sorpmóttakanda.

  1. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafnar skal greiða 1 kr./brt gjald sem skal standa undir 
    kostnaði vegna eftirlits og umsýslu við móttöku á sorpi. Lágmarksgjald kr. 7.790.- og
    hámarksgjald kr. 66.050.-
  2. Úrgangsgjald: Gjald sem lagt er á vegna a liðar má lækka ef skipstjóri getur sýnt fram á að 
    minni úrgangur verði til um borð í skipinu fast gjald 1 kr. á brt en þá er lágmarksgjald. kr. 
    7.524.- en hámarksgjald kr. 63.814.-
  3. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á árinu greiða skv b 
    lið fyrir fimmtu komu og allar komur eftir það.
  4. Skip og bátar sem hafa varanlega viðlegu skulu greiða fast mánaðargjald vegna umsýslu og 
    eftirlits hafnar vegna móttöku á sorpi. Gjaldið skal vera sbr. gr. 8 hér framar.
  5. Förgunargjald: Við komu skips til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. gr laga nr. 33 frá 
    2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land eða ekki. Förgunargjaldið 
    skal standa undir kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.
         a. Farþegaskip yfir 60 metrar að lengd skulu greiða kr. 2.- á hverja brt tölu skipsins og 
             miðast gjaldið við eftirfarandi sorpmagn
         b. Farþegaskip undir 30.000 brt 5 m3
         c. Farþegaskip frá 30.000 brt 10m3
         d. Farþegaskip yfir 100.000 brt 15m3
         e. Öll önnur skip skulu greiða kr. 3.- á brt og þá miðast gjaldið við 5 m3 af sorpi.
  6. Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald 
    samkvæmt e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum 
    upplýsingum um losun magns. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila 
    hafi borist á skrifstofu Strandabyggðar innan tveggja sólarhringa frá brottför skips. Kjósi 
    skipstjóri eða útgerðarmaður þjónustu viðurkennds sorpmóttökuaðila þá greiðir hann allan 
    kostnað þar að lútandi og skal skila til hafnarinnar útfylltu eyðublaði um magn og sundurliðun 
    þess úrgangs sem skilað er í land. Misbrestur á þessu getur leitt til tilkynningar til
    Umhverfisstofnunar.
  7. Samkvæmt 11. grein reglugerðar nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt 
    skipum í áætlunarsiglingum sem hafa reglulega viðkomu í Hólmavíkurhöfn og sýna fram á 
    trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni, undanþágu frá
    afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu 
    Umhverfisstofnunnar um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum skal framvísa gildri 
    staðfestingu þess efnis
  8. Förgunargjald: Skip sem eru undanþegin gjaldskyldu skv. 1.tl 2. mgr. 17. gr. laga nr. 61 frá 
    2003, Hafnalaga, skulu eftir sem áður greiða fyrir losun og förgun sorps hvort sem óskað er 
    eftir viðurkenndum móttökuaðila eða ekki.

VII. Kafli

Festargjöld

9. gr.

Festargjald f. hvern starfsmann í dagvinnu

16.635

Festargjald f. hvern starfsmann í yfirvinnu

22.058

Greiða skal gjöld fyrir komu og brottför. Við komu skipa eru tveir starfsmenn en við brottför einn. Þó er hægt að fá undanþágu hjá hafnarverði frá reglu þessari í sérstökum tilfellum. 

VIII. Kafli

Vatnssala

10. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju.

Vatn afgreitt til skipa 31-60 brt.

7.618 í hvert skipti

Vatn afgreitt til skipa yfir 60 brt.

11.726 í hvert skipti

Vatnsgjald fyrir báta undir 30 brt. er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.

Vatnsgjald er innifalið í viðlegugjaldi. 

IX. Kafli

Vigtargjald

11. gr. 

Almenn vigtun

232 á hvert byrjað tonn

Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun

1.040

Vigtun í yfirvinnu pr. klst.

8.000

Ef kalla þarf í vigtarmann eftir lokun hafnarvogar greiðast 4 klst í útkall á hvern bát. 

Opnun hafnarinnar er frá kl 8:00-21:00 virka daga og 12:00-20:00 um helgar. 

X. Kafli

Rafmagnssala

12. gr. 

Rafmagnssala

24 á kwst.

Mæla- og tenglagjald

3.915

125 AMP tenglar 2 tenglagjöld pr. mánuð

10.494

Rafmagnstengigjald

3.822

Rafmagnstengigjald í yfirvinnu

7.420

Hægt er að vera með eigin mæla séu þeir viðurkenndir og samþykktir af starfsmönnum hafnarinnar, fellur þá niður mæla- og tengigjald.

Rafmagnsgjöld geta breyst án fyrirvara samkvæmt breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða hverju sinni. 

XI. Kafli

Kranagjald

13. gr. 

Löndun með krönum hafnarinnar

500 á hvert byrjað tonn

XII. Kafli

Viðlegugjald

14. gr. 

Frístundabátar (undir 6. metrar)

6.485 á mánuði

Frístundabátar (yfir 6 metrar)

sama verðskrá og um báta undir 20 brt.-yfir 20. brt.

Frístundabátar (12-16 metra)

sama verðskrá og um báta yfir 20 brt.

Frístundabátar yfir 16 metra

gilda bryggju- og lestargjöld

Bátar undir 20 brt.

10.765 á mánuði

Bátar yfir 20 brt.

15.625 á mánuði

Bátar undir 20. brt. fast legupláss

17.340 á mánuði

Bátar yfir 20 brt. fast legupláss

21.400 á mánuði

Daggjald bátar undir 20 brt.

3.245

Daggjald bátar yfir 20. brt.

4.540

Skip yfir 80 brt.

166 á brt. á mánuði

Gjald v. aðstöðu f. olíuafgreiðslu

19.990 á mánuði

Í viðlegugjaldi eru innifalin lestargjöld, bryggjugjöld og vatnsgjald.

Þeir bátar sem dvelja lengur í höfninni en 30 daga á ári eiga kost á að greiða viðlegugjald.

Hafnsögugjald

15. gr. 

Hafnsögugjald

9 á mælieiningu

Hafnsögugjald til og frá höfn

9.480 per. klst.

Hafnsögubátur

33.355

Farþegagjöld

16. gr. 

Hver fullorðinn m. farþegabátum og skemmtiferðaskipum

235

Hvert barn m. farþegabátum og skemmtiferðaskipum

100

Skemmtiferðaskip skulu skila inn farþegalistum minnst einum sólarhring fyrir komu en farþegabátar með áætlunarsiglingar til og frá Hólmavíkurhöfn skila inn gögnum um fjölda farþega mánaðarlega. Eingöngu eru greidd farþegagjöld af greiðandi farþegum. 

Siglingavernd (ISPS)

17. gr. 

Öryggisgjald f. skip sem falla undir skilgreiningu hafnarverndar

67.315 á komu

Öryggisgæsla f. öryggisvörð í dagvinnu

7.720 per klst.

Öryggisgæsla f. öryggisvörð í yfirvinnu

12.480 per klst.

Skráningargjald

18. gr.

 Skráning í Gaflinn á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi kr. 0,43 á kg.

Um innheimtu og greiðslu gjalda

19. gr. 

Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Heimilt er að leita 
samþykkis hafnarstjóra til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjörs skulda. Séu gjöldin ekki 
greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. 
laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

20. gr. 

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs 
Strandabyggðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa starfsmanni hafnar 
upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál 
og afhenda starfsmanni hafnarinnar þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef starfsmaður 
hafnarinnar krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður 
haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á 
ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá 
afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá 
starfsmanni hafnarinnar að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

21. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar á annan hátt sjóleiðis eða 
landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur 
siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending 
vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá 
vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er 
komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar 
eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en 
gjaldið er greitt.

22. gr. 

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. 
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi og/eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár 
fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 3. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Starfsmanni hafnarinnar 
er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

23. gr. 

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Strandabyggðar er skylt að 
innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3.gr. laganr. 50/1988 um 
virðisaukaskatt.

Gildistaka

24. gr. 

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar var samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025. Gjaldskráin tekur þegar gildi og fellur jafnframt brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1738/2024.

Gjaldskrá birt í B-deild Stjórnartíðinda 7. janúar 2026: GJALDSKRÁ Hafnarsjóðs Strandabyggðar. | Stjórnartíðindi

Vatnsveita

Gjaldskylda

1. gr.

Strandabyggð innheimtir gjald fyrir lagningu heimæðar skv. 5. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004. Jafnframt innheimtir sveitarfélagið vatnsgjald og notkunargjald skv. 6. og 7. grein laganna.

Ráðstöfun gjalda

2. gr. 

Tekjum sveitarfélagsins vegna heimæðargjalds vatnsveitu skal varið til vatnsveituframkvæmda og skal gjaldið taka mið af gerð, stærð og lengd heimæða. Vatnsgjald, ásamt öðrum tekjum vatnsveitu, skal standa undir rekstri vatnsveitunnar, þ.m.t fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.

Tengigjald vatnsveitu

3. gr. 

Tengigjöld skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við vatnsveitu í eigu Strandabyggðar og skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og skal vera sem hér segir:

32 mm

242.045

40 mm

263.030

Starfsmenn áhaldahúss sjá um að leggja og tengja heimæðar, setja inntakskrana utanhúss og krana, síu og einstefnuloka innanhúss. Miðað er við að ídráttarrör hafi verið lagt frá inntaksstað mannvirkis að krana í lóð í frostfríu dýpi samkvæmt fyrirmælum verkstjóra áhaldahúss Strandabyggðar og fjarlægð frá stofnæð sé ekki meiri en 15 metrar.
Við endurnýjun eldri vatnsinntaka skal farið eftir framangreindum reglum en greitt verði eftir umfangi verks.

Vatnsgjald

4. gr.

Stofn til álagningar vatnsgjalds skal vera 0,30% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Stofn til álagningar vatnsgjalds er ekki lægra en 26.390,- og ekki hærra en 35.360,-. Vatnsgjald er ekki lægra en kr. 41.435,- og ekki hærra en kr. 55.530,- af íbúðarhúsnæði. Vatnsgjald fer þó ekki yfir 0,5% af fasteignamati húss og lóðar.

Aukavatnsgjald

5. gr.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota kalt vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald. Aukavatnsgjald er innheimt eftir á, samkvæmt mældri notkun með rúmmetramæli sem vatnsveita leggur til. Þar sem ekki eru mælar er stjórn vatnsveitu heimilt að áætla notkun.

  • Aukavatnsgjald fyrir hvern m³ að 100.000 m³ er kr. 35.
  • Afsláttur til stórnotenda frá 100.000 m³ að 250.000 m³ er 20%
  • Afsláttur til stórnotenda frá 250.000 m³ er 40%.
  • Vatnsgjald vegna beitingagáma 20 ft. eru kr. 13.960

Mælaleiga

6. gr. 

Greiðendur aukavatns gjalds skulu árlega greiða mælagjald vegna leigu á vatnsmælum sem hér segir:

25 - 31 mm

8.635

32 - 39 mm

12.035

40 - 49 mm

19.035

50 - 74 mm

29.530

75 mm og stærri

53.400

Breytingar á gjöldum

7. gr. 

Ákvörðun um vatnsgjald samkvæmt 2. grein er tekin árlega af sveitarstjórn samhliða ákvörðun um álagningarstuðla fasteignagjalda. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2021=100 og breytast skv. henni 1. nóvember ár hvert. Gjöld vatnsveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.

Ábyrgð á greiðslu gjalda

8. gr. 

Vatnsgjald greiðist af hús - og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Vatnsgjald nýtur aðfararheimildar skv. 2. mgr. laga nr. 32/2004, sbr. 10. tl.1. mgr. laga um aðför nr. 90/1989, og má gera aðför í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Vatnsgjald nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Notkunargjald og leigugjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.

Gildistaka

9. gr. 

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 19. desember 2025. Staðfestist hér með samkvæmt 10. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.

Gjaldskrá þessi tekur þegar gildi og fellur jafnframt brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1741/2024.

Strandabyggð, 17. desember 2025.

Þorgeir Pálsson oddviti.

B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026

GJALDSKRÁ Vatnsveitu Strandabyggðar. | Stjórnartíðindi

Fráveita

1. gr. 

Sveitarstjórn Strandabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Strandabyggð og hreinsun rotþróa í Strandabyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 808/2012 um fráveitur og meðhöndlun seyru í Strandabyggð. 

2. gr. 

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,25% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. 

3. gr. 

Rotþróargjald fyrir hverja íbúð og sumarhús sem ekki er tengt fráveitu sveitarfélagsins skal vera eftirfarandi árlega kr. 18.745. Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 3.555.- 

4. gr. 

Tengigjald fráveitu skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við fráveitu í eigu Strandabyggðarog skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og skal vera sem hér segir: 

Tengigjald fráveitu kr. 74.000. 

Miðað er við að lóðarhafi leggi frárennsli að lóðarmörkum samkvæmt fyrirmælum verkstjóra áhaldahúss Strandabyggðar. 

5. gr. 

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. 

6. gr. 

Ákvörðun um fráveitugjald samkvæmt 2. grein er tekin árlega af sveitarstjórn samhliða ákvörðun um álagningarstuðla fasteignagjalda. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu grunnur 2021=100 og breytast samkvæmt henni árlega 1. janúar ár hvert. Gjöld fráveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.  

7.gr. 

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025. Staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 4.gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna til þess að öðlast þegar gildi.  Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um fráveitugjald og rotþróargjald í Strandabyggð nr. 1740/2024.

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025.

Strandabyggð, 17. desember 2025

Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri

B deild - útgáfudagur: 7. janúar 2026

 GJALDSKRÁ fyrir stofngjöld fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Strandabyggð. | Stjórnartíðindi

Sorpsamlag Strandasýslu ehf

Gjaldskrá Móttökustöðvar - einstaklingar

Gjaldskrá Móttökustöðvar - fyrirtæki

Gjaldskráin tekur breytingum eftir verðbreytingum hjá þjónustuaðila Sorpsamlags Strandasýslu. 

Losun á ílátum kr. hver losun að viðbættu tímagjaldi, km og tegund efnis

Gámur 20-35 rúmmetra

31.110

Gámur 10-19 rúmmetra

31.110

Kar 1.100 lítra

5.000

Kar 660 lítra

5.000

Tunna 240 lítra

3.160

Leiga á ílátum í kr. 

Mánuður Dagur

Gámur 20-30 rúmmetrar

17.154

657

Gámur 10-19 rúmmetrar

13.724

526

Kar 1.100 lítra

5.485

368

Kar 660 lítra

4.218

315

Tunna 240 lítra

1.876

250

Móttaka og urðun kr. kg.

Óflokkaður úrgangur

38

Almennt sorp óflokkað

38

Kaup fyrir tæki og mannkaup

RJ-U87

538

11.130

RJ-758

423

9.936

TG-G80

538

11.130

Merlo lyftari

7.858

Mannakaup

7.300

RJ-U87 gjald án tímagjalds

828

RJ-U87 með vagni án tímagjalds

1.087

Allur akstur til og frá notkunarstað íláta greiðist af verkkaupa samkvæmt þessari gjaldskrá. 

Öll vinna við akstur og losun íláta greiðist af verkkaupa samkvæmt þessari gjaldskrá.

Samþykkt á aðalfundi Sorpsamlags Strandasýslu 6. nóvember 2025

Sorpirða og sorpeyðing

Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Strandabyggð

1. gr.

Sveitarstjórn Strandabyggðar er heimilt að innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs, sbr. 10. gr. samþykktar nr. 438/2025 um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð. Gjaldið skal lagt á allar íbúðir sem birtar eru í fasteignamati, aukaíbúðir í húsum sem birtar eru í fasteignamati sem og óskiptar eignir, lögbýli og atvinnuhúsnæði. Sorpgjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur grenndarstöðva. Sorpeyðingargjald greiðist til sveitarsjóðs Strandabyggðar og skulu gjalddagar vera hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.

2. gr

Allir fasteignaeigendur í sveitarfélaginu Strandabyggð taka þátt í föstum kostnaði við meðhöndlun úrgangs. Fyrirtæki, stofnanir og aðrir rekstraraðilar í Strandabyggð greiða sömuleiðis árlegt fastagjald sem ætlað er til að taka þátt í rekstri grenndar- og söfnunarstöðva en greiða fyrir losun og eyðingu á öllum úrgangi samkvæmt gjaldskrá og/eða samningi við þjónustuaðila. Með greiðslu fastagjalds er rekstur grenndarstöðva Strandabyggðar tryggður. Þar er tekið við úrgangi sem skilgreindur er gjaldfrjáls sem og úrgangi sem ber úrvinnslugjald t.d. textíl, málmumbúðum og glerumbúðum. Sveitarfélaginu er heimilt að innheimta ákveðið gjald á hverja fasteignareiningu sem nemur allt að 25% af heildarkostnaði sveitarfélagsins af viðkomandi þjónustu, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003.

Sorphirðu- og úrvinnslugjald, þ.e. árlegt fastagjald í Strandabyggð, er sem hér segir:

  1. Íbúðir í þéttbýli, 35.000 kr. 

  2. Sumarhús í dreifbýli, 25.000 kr. 

  3. Lögbýli, 35.000 kr. 

  4. Fyrirtæki og rekstraraðilar, 35.000 kr. 

3. gr

Innheimt er tunnugjald vegna losunar úrgangs við heimili. Úrgangur sem safnað er við heimili er plast, pappír/pappi, óflokkanlegur heimilisúrgangur og lífúrgangur. Æskilegt er að sorptunnur séu staðsettar við framanvert hús og mikilvægt að gæta þess að aðgengi við losun sé ætíð sem best. Mikilvægt er að moka snjó frá sorptunnum að vetri. Tunnufestingar skulu vera þannig að auðvelt sé að losa þær og festa aftur. Ef tunnur eru lengra en 10 metra frá hirðubíl er innheimt hærra gjald fyrir losun. Tunnur skulu ekki fylltar meira en svo að þeim sé hægt að loka. Yfirfullar tunnur verða ekki losaðar og er fólki bent á móttökustöð.

Lífúrgangi verður safnað í fötur og safnað vikulega í þéttbýli. Gæta skal þess að fötur séu staðsettar við lóðarmörk á auglýstum söfnunardegi í sorpdagatali. Einnig er hægt að skipta lífúrgangsfötum á opnunartíma móttökustöðvar. Um tilraunaverkefni er að ræða og útfærsla gæti breyst.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu er 4.000 kr. í hvert sinn sem óskað er breytinga. Á það við um breytingu á íláti/tunnum, viðbótarílát eða breytingu á skráningu, svo sem samnýtingu á tunnum/ílátum. Ósk um breytingar skulu tilkynntar á skrifstofu Strandabyggðar.

Nánari leiðbeiningar varðandi flokkun eru birtar á heimasíðu Strandabyggðar og í 5. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð, nr. 438/2025. Sorphirðudagatal er birt á heimasíðu Strandabyggðar. Fyrir aukahirðingu samkvæmt skráningu þjónustuaðila eru innheimtar 15.000 kr. auk akstursgjalds í dreifbýli samkvæmt gjaldskrá þjónustuaðila.

Tunnugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum og er um árlegt gjald að ræða samkvæmt neðangreindri töflu:

Sorpílát Stærð Losun Ílát minna en 10 m frá hirðubíl, kr. Ílát meira en 10 m frá hirðubíl, kr.

Blandaður úrgangur

240 l

6 vikna fresti

40.000

55.000

Blandaður úrgangur

660 l

6 vikna fresti

100.000

125.000

Pappír og pappi

240 l

6 vikna fresti

9.000

12.000

Pappír og pappi

660 l

6 vikna fresti

25.000

40.000

Plastumbúðir

240 l

6 vikna fresti

9.000

15.000

Plastumbúðir

660 l

6 vikna fresti

25.000

40.000

Lífúrgangur

5,7 l

vikulega eftir hverfum

15.000

Lífúrgangur

32,6 l

vikulega eftir hverfum

35.000

Hægt er að sækja um niðurfellingu á gjaldi vegna lífúrgangs á skrifstofu Strandabyggðar ef notast er við aðrar viðurkenndar leiðir til förgunar lífúrgangs. Í þeim tilfellum verður lífúrgangur ekki sóttur á viðkomandi heimili.

4. gr

Fyrirtæki, stofnanir og rekstraraðilar geta samið við þar til bæran aðila um að annast sorphirðu á þeirra vegum sem hefur tilskilin leyfi og réttindi til flutnings á úrgangi til förgunarstaðar. Þjónustuaðili Strandabyggðar, sem er Sorpsamlag Strandasýslu, getur tekið að sér að annast sorphirðu fyrir fyrirtæki og stofnanir gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá. Greitt er fyrir gjaldskyldan úrgang á móttökustöð Sorpsamlagsins. Nánari skýringar eru í 7. gr. samþykktar nr. 438/2025 um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð.

  1. Móttökustöðin er vöktuð með myndavélum. Ef viðkomandi losar úrgang án greiðslu verður innheimt með reikningi á eiganda bifreiðar.

  2. Óheimilt er að fleygja sorpi og úrgangi á víðavangi og er sveitarfélaginu heimilt að beita viðeigandi viðurlögum.

5. gr

Gjaldtaka á móttökustöð miðast við þyngd og tegund úrgangsmagns sem skilað er. Innheimt er skv. gjaldskrá þjónustuaðila. 

6. gr

Sorpeyðingargjald vegna dýraleifa er lagt á alla aðila með dýrahald. Gjaldstofn er reiknaður út frá bústofnsskýrslum Matvælastofnunar.

  1. Nautgripir, 1.400 kr./grip.

  2. Sauðfé, 170 kr./grip.

  3. Hross, 300 kr./grip.

Gjaldið er innheimt með fasteignagjöldum 1. október ár hvert. Dýraleifar eru sóttar á auglýstum dögum samkvæmt heimasíðu Strandabyggðar haust og vor. Bændur tilkynna um dýraleifar til Sorpsamlags Strandasýslu sem heldur utan um skráningu og sækir á auglýstum dögum.

7. gr

Gjaldskrá þessi, sem var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 16. desember 2025, staðfestist hér með 10. gr. samþykktar nr. 438/2025 um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð og samkvæmt lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi, um leið fellur gjaldskrá um sorphirðu í Strandabyggð nr. 206/2024 úr gildi.

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 16. desember 2025.

Strandabyggð, 17. desember 2025.

Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026

GJALDSKRÁ fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Strandabyggð. | Stjórnartíðindi