Flokkun úrgangs
Í Strandabyggð er allt sorp flokkað til endurvinnslu eða förgunar.
Sorpsamlag Strandasýslu ehf sér um sorphirðu í sveitarfélaginu.

Á móttökustöð Sorpsamlags Strandasýslu er tekið á móti öllum úrgagnsflokkum til endurvinnslu eða förgunar.
Hægt er að koma með pappír og pappa, plast, timbur, járn, ljósaperur, málma, raftæki, húsgögn, textíl, hjólbarða, mengunarvörur, rafhlöður og fleira.
Verið er að innleiða nýtt fyrirkomulag í sorphirðu í Strandabyggð. Innan tíðar verða þrjár tunnur við hvert heimili ásamt fötu fyrir lífrænan úrgang. Þá verður sótt á hvert heimili pappír og pappa, plast, blandaðan úrgang og lífrænan úrgang.
Flokkun heimilisúrgangs

Matarleifar
Í fötu fyrir matarleifar má fara: Ávextir og ávaxtahýði/-börkur, grænmeti og grænmetishýði, egg og eggjaskurn, kjöt, fiskafgangar, mjöl, hrísgrjón, pasta, brauð, kökur, kaffifilterar, kaffikorgur, tepokar, tannstönglar úr tré, eldhúsbréf, munnþurrkur, servíettur, korktappar, laufblöð af pottaplöntum, afskorin blóm.
Ekki má setja: tyggjó, lífplast, stóra kjöthluta (lambalæri eða stærra), kattasand, grófan garðaúrgang, bómul.
Efni sem eru ekki lífræn eiga ekki heima í tunnu fyrir matarleifar. Ennig umbúðir sem eru merktar niðurbrjótanlegar (t.d. lífplast) þar sem þær brotna ekki nægjanlega hratt niður í iðnaðarjarðgerð og henta því ekki í moltu. Sláturúrgangur og fiskihrat frá fyrirtækjum fer í sérstakan farveg.

Pappír og pappi
Í tunnu fyrir pappír og pappa má fara: Dagblöð, umslög, gluggaumslög, skrifstofupappír, bæklingar, kassakvittanir, hreinar og þurrar mjólkurfernur, gjafapappír, eggjabakkar, post-it miðar, morgunkornspakkar, klósettrúllur, millispjöld af vörubrettum, hreinir pizzakassar, pappakassar.
Ekki má setja: samsettar umbúðir af pappa og plasti nema taka þær í sundur, óhreinan pappír, munnþurrkur og eldhúsbréf, bökunarpappír.

Plast
Í tunnu fyrir plast má fara: Plastpokar, plastbrúsar, plastdósir, plastfilma, plastumbúðir, plastbakkar, plastflöskur, plastlok, frauðplast umbúðir, plaströr.
Ekki má setja: rúmfrekt plast (farið með það á móttökustöð), lífplast, raftæki, blöðrur, gúmmí

Málmumbúðir
Í tunnu fyrir málmumbúðir má fara: Niðursuðudósir, aðrar umbúðir úr málmi, málmlok af krukkum, sprittkertabikarar, álpappír t.d. af skyr- og jógúrtdósum, hefti, gormar, skrúfur, bréfaklemmur.
Ekki má setja: Raftæki, rafhlöður, snakkpoka.

Gler
Í tunnu fyrir gler má fara: Hreinar umbúðir úr gleri, s.s. krukkur, flöskur ekki með skilagjaldi, aðrir ónýtir glermunir.
Ekki má setja: Postulín, leirvörur, lok af glerumbúðum, spegla, flísar.

Textíll
Í gáma fyrir textíl má fara: Fatnaður, lín, handklæði, áklæði, tuskur, dúkar, skór, gardínur, aðrar vefnaðarvörur.
Ekki má setja: Skítugan textíl eða mengaðan, húsgögn.

Spilliefni
Dæmi um spilliefni: Rafhlöður, lítil raftæki, prenthylki, úðabrúsar, ljósaperur, málning, leysiefni, rafgeymar, lyfjaleifar, kveikjarar.

Blandaður úrgangur
Í tunnu fyrir blandaðan úrgang má fara: Einnota bleyjur, tyggjó, blautþurrkur, ryksugupokar, plástrar, eyrnapinnar, svampar, límband, sellófan, annar úrgangur sem er skítugur eða að öðru leyti óendurvinnanlegur.

Skilagjaldsskyldar umbúðir
Strandafrakt sér um móttöku á skilagjaldsskyldum umbúðum. Skilagjaldsskyldum umbúðum má einnig koma í söfnunargáma góðgerðar- og íþróttasamtaka sem nýta ágóðann í starfsemi sína.

Annar úrgangur
Allan rúmfrekan og annan heimilisúrgang skal koma til endurnýtingar og endurvinnslu á söfnunarstöð Sorpsamlags Strandasýslu ehf á Skeiði 3 á Hólmavík. Til dæmis: húsgögn, raftæki, garðaúrgang, kertavax.
Lyfjum og umbúðum utan af þeim (t.d. pilluspjöld) má skila til apóteka sem sjá um eyðingu. Ytri umbúðum sem ekki hafa verið í snertingu við lyfin má setja í endurvinnslutunnur.